Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Ríkisstjórnin hefur haft 40 milljarða af öldruðum og öryrkjum

föstudagur, 30. september 2005

Ríkisstjórnin hefur haft 40 milljarða af öldruðum og öryrkjum

 

Á valdatímabili ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sl. 10 ár hafa stjórnvöld haft 40 milljarða af öldruðum og öryrkjum.Þetta er mikið fé og alger svívirða,að þetta skuli hafa viðgengist.Til þess að skila þessu fólki aftur því,sem ranglega hefur af því verið haft hefði því þurft að láta það fá meginhlutann af peningunum,sem fengust fyrir sölu Símans en það voru sem kunnugt er 67 milljarðar. En svo mikil var óskammfeilni  ríkisstjórnarinnar,að hún lét ekki aldraðra og öryrkja fá eina krónu af þessu fé!

 

Lofað var,að engin skerðing mundi eiga sér stað

 

Árið 1995 ákváðu stjórnvöld að skera á tengsl milli lífeyris aldraðra og öryrkja frá almannatryggingum og lágmarkslauna á almennum vinnumarkaði. Fram að þeim tíma höfðu lífeyrisgreiðslur hækkað sjálfvirkt  um leið og lágmarkslaun hækkuðu. Við þessa breytingu var ákveðið,að lífeyrisgreiðslur ættu frá þeim tíma að taka mið af launaþróun.Þáverandi forsætisráðherra lýsti því yfir við þessa breytingu, að lífeyrisgreiðslur mundi ekki skerðast við breytinguna,heldur þvert á móti verða tryggar og rúmlega það.Það yrði bæði tekið mið af launabreytingum og verðlagsbreytingum.Tryggingin yrði tvöföld. Reynslan hefur orðið önnur.Á þessu 10 ára tímabili,sem liðið er síðan, hefur kaupmáttur lífeyrisgreiðslna aldraðra og öryrkja aðeins aukist um helming þess,sem hann hefur aukist hjá verkafólki með lægstu laun. Alls hefur ríkisstjórnin haft af öldruðum og öryrkjum á þessu tímabili 40 millarða króna.Með öðrum orðum: Ef lífeyrir aldraðra og öryrkja,grunnlífeyrir og tekjutrygging, hefði áfram hækkað í samræmi við hækkanir á launum verkafólks og haldið raungildi sínu  eins og þær bætur voru 1995 hefðu þessar lífeyrisgreiðslur verið 40 milljörðum hærri á tímabilinu en þær voru. Grunnlífeyrir og full tekjutrygging  aldraðra og öryrkja væru 17 þús. kr. hærri á mánuði nú en þær  bætur eru,ef þær  hefðu hækkað í samræmi við  hækkun lágmarkslauna frá 1995.

 

Skattpíning aldraðra og öryrkja

 

Á sama tíma og framangreind þróun hefur átt sér stað varðandi kaupmátt lífeyris aldraðra og öryrkja hefur skattpíning þessa fólks aukist. Skerðing skattleysismarka hefur bitnað þunglega á öldruðum og öryrkjum:Skerðingin frá 1989,sem að mestu verður eftir 1995, er samkvæmt upplýsingum fjármálaráðuneytis  36,4 milljarðar ( m.v. 2003).Ríkissjóður tók því 36,4 milljarða  meira til sín árið 2003 en verið hefði, ef skattleysismörk hefðu fylgt launavísitölu eins og eðlilegt hefði verið. Ef miðað væri við neysluvísitölu nemur upphæðin 16,3 milljörðum,sem ríkið hefur tekið meira til sín  en verið hefði ef skattleysismörk hefðu fylgt þeirri vísitölu.Hér er um háar fjárhæðir að ræða. Ríkisstjórnin hefur notað þessa fjármuni til þess að lækka skatta á fyrirtækjum. Það hefur haft forgang. Skattleysismörk eru kr. 71.296 í ár en ættu að vera kr. 114.015, ef þau hefðu fylgt launavísitölu en  kr. 85.709, ef þau hefðu fylgt neysluvísitölu. Þessi þróun hefur leitt til þess,að öryrkjar og aldraðir,sem áður greiddu enga skatta greiða nú háar fjárhæðir í skatta. 29 þús manns með tekjur undir 100 þús kr. greiddu á sl. ári 2 milljarða í skatta! Lífeyrisþegi,sem engar tekjur hefur aðrar en bætur almannatrygginga er nú farinn að greiða  sem svarar 1 ½ -2ja mánaða bótum  á ári í skatta. Framkoma stjórnvalda við aldraða og öryrkja er til skammar.

 

Björgvin Guðmundsson

 

Birt í Fréttablaðinu í september 2005

 

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn