|
Ríkisstjórnin hefur fallið á velferðarprófinuföstudagur, 21. desember 2012
| Þingkosningar nálgast og því er eðlilegt, að metið sé hvernig ríkisstjórnin hefur staðið sig og hvernig ríkisstjórn sé líklegast að taki við eftir kosningar.Hefur ríkisstjórnin staðið undir væntingum? Þetta er fyrsta hreina meirihlutastjórn vinstri manna og því voru miklar væntingar gerðar til stjórnarinnar.Mér finnst ríkisstjórnin ekki hafa staðið undir væntingum í tveimur stórum málaflokkum, velferðarmálum og fiskveiðistjórnunarmálum.Ég hefi skrifað margar greinar um velferðarmálin og einkum málefni aldraðra og öryrkja.Ég hefi í þessum greinum leitt rök að því, að ríkisstjórnin hafi ekki staðið sig í þessum málaflokki.Ríkisstjórnin hefur ekki gætt hagsmuna aldraðra og öryrkja nægilega vel.Og það sem verra er: Hún stendur ekki við fyrirheit, sem hún gaf í júní 2009 þess efnis, að lög frá 1.júlí 2009 um skerðingu kjara aldraðra og öryrkja væru tímabundin.Ég tel,að það ætti að afturkalla þau nú, þegar ástandið í efnahagsmálum þjóðarinnar hefur batnað.Launalækkun ráðherra,alþingismanna og embættismanna hefur þegar verið afturkölluð.Í fiskveiðistjórnunarmálum hefur ríkisstjórnin farið í öfuga átt miðað við það, sem lofað var fyrir síðustu kosningar. Lofað var að fara fyrningarleiðina, að innkalla aflaheimildir á 20 árum og úthluta á ný á réttlátan hátt. En ríkisstjórnin hefur flutt frumvörp um að afhenda kvótakóngunum aflaheimildirnar til meira en 20 ára og hefur því algerlega svikið loforðið um fyrningu aflaheimilda.Upptaka veiðigjalda er skref í rétta átt en veiðigjöldin eru alltof lág.
Endurreisn efnahagslífsins hefur tekist vel
Ríkisstjórninni hefur hins vegar tekist vel að endurreisa efnahagslífið eftir bankahrunið. Stjórnin fór blandaða leið í því efni, beitti skattahækkunum og niðurskurði ríkisúgjalda. Stefnan í skattamálum var í anda jafnaðarmanna. Hæstu skattar voru lagðir á þá efnameiri en lægri skattar lagðir á þá, sem minni höfðu tekjurnar. Og þeir, sem höfðu lægstu tekjurnar, sluppu við skattahækkanir.Þessi skattastefna hefur aukið jöfnuð í þjóðfélaginu.Hins vegar hefur of mikið verið skorið niður í velferðarkerfinu.Endurreisn bankanna tókst vel og ríkisstjórnin gerði ráðstafanir til þess að leysa skuldavanda fyrirtækja og heimila.Heimilin telja þó ekki nóg að gert í þeim efnum og gagnrýna einkum verðtrygginguna í því sambandi.En verðtryggingin var búin að vera í gildi í langan tíma áður en hrunið varð og það er ekkert einfalt mál að afnema hana.Ég tel,að kanna mætti hvort unnt væri að afnema verðtrygginguna í áföngum á löngum tíma.En besta lausnin í verðtryggingarmálum væri að taka upp evruna og komast út úr verðbólgunni
Minni verðbólga,minna atvinnuleysi,ágætur hagvöxtur
Ríkisstjórninni hefur tekist að lækka verðbólguna og minnka atvinnuleysið. Henni hefur einnig tekist að koma á hagvexti hér og er hann nú meiri á Íslandi en í nágrannalöndum okkar.Atvinnuleysi er einnig miklu minna hér en í löndum Evrópusambandsins.Viðreisn efnahagslífsins hér á landi hefur vakið athygli erlendis og Ísland nýtur nú á ný trausts á alþjóðlegum fjármálamörkuðum, gagnstætt því,sem var fyrst eftir hrun, þegar allar lánastofnanir voru Íslandi lokaðar og hætta var á þjóðargjaldþroti.Það má því segja, að ríkisstjórnin hafi unnið kraftaverk við endurreisn efnahagslífsins og fjármálalífsins.Enn er þó eftir að koma atvinnuleysinu lengra niður og það þarf að koma fjárfestingu betur í gang.Enda þótt draga hafi mátt úr stóriðju tel ég nauðsynlegt að setja í gang vissar stóriðjuframkvæmdir til þess að hjálpa atvinnulífinu, skapa aukinn hagvöxt og aukna atvinnu.Við verðum að nota öll úrræði til þess að koma atvinnulífinu í fullan gang og útrýma atvinnuleysinu.
Hvernig ríkisstjórn næst?
Hvernig ríkisstjórn er best að fá eftir næstu kosningar? Ég tel æskilegast að fá nýja vinstri stjórn , t.d. sömu flokka og nú eru við stjórn, ásamt Framsókn eða einum eða tveimur af nýju flokkunum.En ef það tekst ekki, væri æskilegt að fá stjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksins.Ég er sem sagt ekki sammála Jóhönnu Sigurðardóttur um, að ekki megi vinna með Sjálfstæðisflokknum.Slík stjórn ætti væntanlega auðveldara með að koma í gang vissri stóriðju, sem VG stendur gegn og hún ætti að geta stuðlað að aukinni erlendri fjárfestingu hér á landi.Ég er ekki viss um, að slík stjórn mundi ná verri árangri í velferðarmálum en núverandi ríkisstjórn hefur gert.Núverandi stjórn hefur fallið á velferðarprófinu.Ef ríkisstjórnin vill bæta sig á því sviði,eru enn nokkrir mánuðir til stefnu.
Björgvin Guðmundsson´
Birt í Mbl. 21.des. 2012 | Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|