Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Jafnaðarmenn á móti skólagjöldum

mánudagur, 19. apríl 2004

 

 

Sú var tíðin,að aðeins einn háskóli var í landinu. Nú eru þeir nokkrir og þar á meðal eru nú einkaskólar á háskólastigi.Einkaskólarnir innheimta skólagjöld en fá  einnig há framlög frá ríkinu. Segja má því,að einkaskólarnir séu hálfopinberir enda þótt oft sé látið í veðri vaka,að þeir standi á eigin fótum. Háskóli Íslands hefur algera sérstöðu meðal háskólanna: Hann er sá eini sem hefur rannsóknarhlutverk og er því sá eini,sem er sambærilegur við háskóla erlendis. Auk þess er Háskóli Íslands eini háskólinn hér a landi sem býður upp á nám í nær öllum greinum. Nýju einkaháskólarnir  bjóða aðeins nám í  fáum greinum þ.e. þeim,sem   mikil eftirspurn er eftir.Þeir fleyta rjómann ofan af  í greininni,ef svo má segja.

 

Metingur á milli háskóla

 

  Frá því einkaskólarnir risu upp hefur verið talsverður metingur   á milli  háskólanna. Einnig hefur það tíðkast talsvert að undanförnu, að vissir blaðamenn og aðrir hafi verið að reka hornin í Háskóla Íslands og segja,að sá skóli væri ekki eins  “góður” og einkaskólarnir. Háskóli Íslands væri ekki eins framsækinn og  einkaskólarnir,ekki eins metnaðarfullur. Þetta er ósanngjörn gagnrýni. Háskólarnir eru ekki sambærilegir.Háskóli Íslands hefur algera sérstöðu meðal háskólanna. Áður er vikið að rannsóknarhlutverki Háskóla Íslands. En auk þess er rétt að ítreka það,að Háskóli Íslands verður að  halda uppi kennslu í nær öllum háskólagreinum,hvort sem eftirspurn eftir þeim er mikil eða ekki. Einkaháskólarnir líkjast í þessum efnum fremur háskóladeildum en fullkomnum háskólum eins og þeir gerast erlendis.

 

Hugmyndir um skólagjöld

 

Undanfarið  hafa löggjafinn og ríkisvaldið  skorið niður framlög til Háskóla Íslands.Liggur við,að Háskólinn búi nú við fjársvelti. Hefur þessi staða leitt til þess að háværar raddir eru nú um það innan Háskólans,að hann fái að leggja á  skólagjöld.Forráðamenn Háskóla Íslands líta til einkaskólanna í þessu efni og sjá,að þeir fá að innheimta skólagjöld enda þótt þeir njóti einnig opinberra framlaga.Það  er engu líkara en stjórnarflokkarnir hafi verið að halda niðri framlögum til Háskólans til þess að geta komið á skólagjöldum. Fram til þessa hefur Háskóli Íslands verið opinn öllum án   tillits til efnahags. Jafnt háir sem lágir,ríkir sem fátækir hafa getað stundað nám við Háskóla Íslands. Má segja,að þetta hafi verið aðalsmerki Háskólans ásamt því að takmarka ekki fjölda þeirra,sem fá aðgang að skólanum. En að vísu  hefur örlítið verið látið undan í því efni. Áríðandi er að halda Háskóla Íslands opnum fyrir alla.Háskólinn verður að vera opinn öllum án tillits til efnahags. Það hefur alltað verið stefna jafnaðarmanna,að Háskólinn væri opinn öllum.Jafnaðarmenn vilja,að efnaminni stúdentar eigi sömu möguleika til háskólanáms og þeir efnameiri.

 

Ekki dugar að benda á Lánasjóðinn

 

Þeir sem berjast fyrir skólagjöldum hafa m.a. bent á það,að stúdentar muni geta fengið lán hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna fyrir skólagjöldum. Því muni efnaminni stúdentar eiga sömu möguleika til náms eftir sem áður. En þetta eru falsrök. Lán þarf að greiða. Og ekki vilja allir taka mikil lán.

Nauðsynlegt er að berjast hatrammlega gegn skólagjöldunum. Löggjafi og ríkisvald verða að tryggja Háskóla Íslands nægilegt fjármagn. Öflugur  og framsækinn ríkisháskóli er aðalsmerki hverrar sjálfstæðrar þjóðar. Það gengur ekki að ætla að velta kostnaði Háskólans yfir á nemendur. Margir telja einnig,að ef skólagjöld væru tekin upp mundi ríkið draga úr fjárframlögum til Háskólans þannig,að skólinn stæði í sömu sporum á eftir eins og áður. Vissulega er hætta á því. Krafan er: Engin skólagjöld við Háskóla Íslands

 

Björgvin Guðmundsson

 

Birt í Mbl. 19.apríl  2004



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn