Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Það hefur verið níðst á öryrkjum

miðvikudagur, 23. nóvember 2005

 

 

Öryrkjabandalag Íslands hefur enn á ný farið í mál við ríkisstjórnina vegna vanefnda á greiðslum til öryrkja.Fyrir alþingiskosningarnar 2003 gerði Öryrkjabandalagið samkomulag við ríkisstjórnina um 1,5 milljarða kr. hækkun á  aldurstengdum bótum til öryrkja.En þegar kom að því að efna samkomulagið vildi ríkisstjórnin ekki greiða meira en 1 milljarð í hækkun á bótum. Öryrkjar gáfu ríkisstjórninni langan frest til þess að efna samkomulagið og vildu fremur fara samkomulagsleið en  dómstólaleið. En allt kom fyrir ekki. Ríkisstjórnin var ófáanleg til þess að efna samkomulagið að fullu og mun þar einkum hafa strandað á  Sjálfstæðisflokknum.Áttu öryrkjar þá engan annan kost en að fara í mál við ríkisstjórnina  og þannig stendur málið nú. Tryggingastofnun ríkisins reiknaði út hvað framkvæmd samkomulags öryrkja og ríkisstjórnar mundi kosta. Lá sá útreikningur fyrir 11.apríl 2003 og samkvæmt honum var kostnaðurinn  kr. 1.528.000

 

 Ríkisstjórnin ofsækir öryrkja

 

Nýlega lét heilbrigðisráðuneytið  hagfræðistofnun háskólans gera skýrslu um fjölgun öryrkja á ákveðnu árabili.Var rekið upp mikið ramakvein þegar skýrslan kom út og sagt,að öryrkjum hefði fjölgað gífurlega mikið og kostnaður vegna lífeyrisgreiðslna til þeirra hefði stóraukist..Öryrkjabandalagið segir ,að fjöldi öryrkja hér sé svipaður og í nálægum löndum. Vakti það mikla undrun hvers vegna heilbrigðisráðuneytið gat ekki sjálft flett því upp hvað öryrkjum hefði fjölgað mikið hér eða fengið tölurnar frá Tryggingastofnun ríkisins en þær liggja allar fyrir í staðtölum Tryggingastofnunar. Eina  skýringin á þessu háttalagi ráðuneytisins er sú,að ætlunin hafi verið að  gera mikið áróðursmál úr  því ,að öryrkjum hefði fjölgað mikið og um leið að gera það tortryggilegt,að æ fleiri yrðu öryrkjar. Vantaði ekki að hagfræðistofnun og ráðuneytið  réðust með miklu offorsi að stöðu og kjörum öryrkja er skýrslan kom út. Ekki er ljóst hvað þessum aðilum gengur  til,þar eð  enginn er úrskurðaður öryrki hjá Tryggingastofnun nema að undangengnu örorkumati læknis og  fara þau mál öll gegnum tryggingayfirlækni Tryggingastofnunar ríkisins.Hann ber ábyrgð á því hverjir fá örorkubætur.Umræðan í kjölfar útgáfu skýrslu hagfræðistofnunar  hefur verið þannig,að margir virðast telja,að menn geti einfaldlega ákveðið að hætta að vinna og fara á ororkubætur.Ekki vantar,að margir sjálfskipaðir spekingar hafa verið með sleggjudóma um að  margir Íslendingar nenntu ekki að vinna og vildu heldur vera á örorkubótum.

 

 Atvinnulífið ómanneskulegt

 

 Þegar fjárlagafrumvarpið var lagt fram kom í ljós,að  heilbrigðisráðuneytið hafði fellt niður bensínstyrk til hreyfihamlaðra. Var það helsta sparnaðarráðstöfun ráðuneytisins. Þessi ráðstöfun mæltist mjög illa fyrir innan þings sem utan og varð heilbrigðisráðherra að draga þessa ákvörðun sína til baka. En þessi ráðagerð sýndi afstöðu ráðuneytsins til öryrkja.Þegar mál þetta og mál öryrkja almennt voru rædd á alþingi sagði heilbrigðisráðherra,að öryrkjum hefði fjölgað mikið á árinu. Var ráðherra mikið niðri fyrir og hann sagði með hækkuðum rómi: Öryrkjum hefur fjölgað um 3 á dag undanfarið. Var ljóst,að honum þótti þetta ógnvænlegt og menn bjuggust við að í næstu setningu mundi  ráðherra segja hvað hann vildi gera við þessa  3 á dag! Næst mun ráðherra ef til vill óskapast yfir því hvað sjúklingum fjölgi mikið.Það þýðir ekkert að óskapast yfir fjölgun öryrkja eða sjúklinga.Þetta eru staðreyndir sem verður að horfast í augu við. Nær væri að athuga hver orsökin er fyrir fjölgun öryrkja. Örsökin er m.a. sú,að ríkisstjórnin hefur skapað hér á landi ómanneskulegt atvinnulíf. Það ríkir svo mikil harka í dag í rekstri fyrirtækja,græðgissjónarmiðin eru svo allsráðandi,að ekki er rúm fyrir  starfsmenn sem ekki  standa sig 100%.Ef eitthvað smávegis er  að hjá starfsmanni er hann umsvifalaust rekinn.Og það getur reynst erfitt fyrir slíkan aðila að fá vinnu hjá öðrum atvinnurekanda.Ef hann fær ekki vinnu fer hann á atvinnuleysisskrá og  getur brotnað niður.Og það er einmitt það sem gerst hefur í mörgum tilvikum.

 

Björgvin Guðmundsson

 

Birt í Fréttablaðinu 23.nóv. 2005 ( Örlítið breytt)



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn