Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Sprengja skattarnir stjórnina?Fjölmiðlamálið einnig eldfimt

þriðjudagur, 3. ágúst 2004

 

Friður er nú kominn á í þjóðfélaginu eftir allt fjölmiðlafárið.Menn eru sæmilega sáttir. Þó eru sumir þeirrar skoðunar,að ekki hafi verið heimilt að taka fjölmiðlafrumvarpið úr höndum þjóðarinnar eftir,að forseti vísaði því þangað í þjóðaratkvæðagreiðslu. Málið hafi verið í höndum þjóðarinnar og því hafi þjóðaratkvæðagreiðsla átt að fara fram. Þeir eru þó fleiri,sem telja,að  mestu máli skipti,að upphafleg fjölmiðlalög hafi verið  felld úr gildi. Óánægja þjóðarinnar hafi beinst gegn þeim og málsmeðferðinni.Lögin hafi verið sett í andstöðu við þjóðina og því hafi verið eðlilegt að fella þau úr gildi.

 Spurningin er sú hvernig ríkisstjórnin fari út úr þessu máli öllu. Það er ljóst,að ef þjóðaratkvæðagreiðsla hefði farið fram hefði ríkisstjórnin koltapað henni.Ríkisstjórnin bætir örlítið fyrir mistök sín með því að afturkalla fjölmiðlalögin,fella þau úr gildi. Með   því viðurkennir  ríkisstjórnin,að hún hafi gert mistök. Stjórnin viðurkennir,að hún hafi haft á röngu að standa bæði varðandi efni fjölmiðlafrumvarpsins og málsmeðferðina alla. Mistök eru mannleg og  líklegt er að ríkisstjórnin vinni eitthvað af töpuðu fylgi sínu með því að stíga þetta skref. Ljóst er þó,að ríkisstjórnin stendur mjög illa. Hún hefur tapað fylgi og trausti hjá þjóðinni og  það,sem verst er fyrir stjórnina:Það er ekki sama trúnaðartraustið innbyrðis í stjórninni eins og áður. Það er komin einhver uppdráttarsýki í stjórnina. Það er eðlilegt. Stjórnin er búin að sitja mikið lengur en eðilegt  getur talist. Í rauninni var líftími stjórnarinnar úti við síðustu kosningar. Stjórnin tapaði miklu fylgi í kosningunum,einkum forustuflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn. Hann lækkaði úr rúmum 40% í 33%. Framsókn hélt áfram að tapa  fylgi. Í öllum öðrum vestrænum löndum hefði  ríkisstjórn farið frá undir slíkum kringumstæðum. En okkar ríkisstjórn neitaði að fara.Og þegar  Framsókn vildi ekki styðja Sjálfstæðisflokkinn lengur til forustu í ríkisstjórninni bauð Davíð Framsókn stól forsætisráðherra aðeins ef Framsókn vildi halda samstarfinu áfram.Framsókn beit á það agn.

 Það verða að sjálfsögððu kaflaskil í samstarfi flokkanna 15.september n.k. þegar Framsókn fær fundarstjóra ríkissstjórnarinnar. Sjálfstæðismenn eru ekkert hrifnir af því að láta Framsókn fá stólinn. Frá fyrri tíma er mikil andstaða við Framsókn í Sjálfstæðisflokknum og búast má við,að hún brjótist  upp á yfirborðið þegar Davíð fer frá og Framsókn tekur við.Þar við bætist,að mikill ágreiningur  er milli flokkanna um viss mál. Ber skattamálin þar hæst. Sjálfstæðismenn vilja lækka tekjuskatta einstaklinga um 20 milljarða en Framsókn er því algerlega andvíg   og vill stíga mikið minni skref í skattamálum.Hagfræðingar eru  logandi hræddir við  miklar skattalækkanir. Fjölmiðlamálið er einnig mikið  ágreiningsmál. Það   mál er ekki búið.Það kemur upp aftur í  haust. Halldór hefur áreiðanlega lofað Davíð því,að taka  fjölmiðlamálið upp á ný. En þingmenn Framsóknar vilja ganga mun skemur í því máli en Sjálfstæðisflokkurinn. Það er því alls óvíst hvernig það mál leysist. Það er sprengiefni í því máli ekki síður en í skattamálunum.Ágreiningsmálin eru fleiri. Það er því alls óvíst,að ríkisstjórnin lifi lengi enn.

 

Björgvin Guðmundsson

 

Birt í Fréttablaðinu  3.ágúst  2004

 

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn