Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Vinnutíminn er of langur

laugardagur, 18. nóvember 2006

 

Samkvæmt  nýrri Gallupkönnun, sem gerð var fyrir Eflingu og Starfsgreinasambandið,  hefur verkafólk áhyggjur af löngum vinnutíma.Vinnutíminn er nú til jafnaðar 51 stund á viku hjá verkafólki  og hefur lengst um 1 stund frá 1998. Þetta er vissulega mikið áhyggjuefni. Vinnutíminn ætti að styttast en ekki öfugt. Árið 1990 flutti ég tillögu til þingsályktunar  á alþingi um styttingu vinnutíma en ég sat þá um skeið á þingi fyrir Alþýðuflokkinn. Tillaga mín hljóðaði svo:” Alþingi ályktar að fela  félagsmálaráðherra að  semja áætlun um almenna styttingu  vinnutíma án skerðingar tekna. Skal ráðherra hafa samráð við aðila vinnumarkaðarins um málið.”  Í greinargerð með tillögunni kom fram, að vinnutími hjá ófaglærðu verkafólki væri til jafnaðar 52,7 stundir á viku. Samkvæmt því hefur vinnutíminn sáralítið stytst á þeim 16 árum,sem liðinn eru síðan tillagan var flutt.Í greinargerð með tillögunni lagði ég til, að stytting vinnutímans yrði gerð í áföngum, t.d. á 2-3 árum. En því miður náði tillagan ekki fram að ganga.

 

Þjóðarsátt um styttingu vinnutíma

 

  Það er mikið hagsmunamál fyrir verkafólk að stytta vinnutímann og tryggja það, að verkafólk geti lifað sómasamlegu lífi af dagvinnu. Vinnutími í raun ætti að mínu mati að vera að hámarki 40 stundir á viku en styttri ef við færum að fordæmi Norðurlanda. Það er sannað mál, að með styttri vinnutíma aukast afköst vinnandi fólks. Langur vinnutími  dregur úr afköstum  og eykur slysahætta. Stuttur vinnutími er brýnt heilsufarsmál. Ef til vill væri unnt að ná nýrri þjóðarsátt um styttingu vinnutíma án tekjuskerðingar. Það er stórmál.

Stjórnvöld hafa nokkrum sinnum á undanförnum áratugum fjallað um vinnutíma og leiðir til þess að stytta hann.Árið 1987 skipaði þáverandi forsætisráðherra , Þorsteinn Pálsson, nefnd til þess að  annast samanburðarkönnun á launum karla og kvenna.Verksvið þeirrar nefndar var síðar víkkað út þannig, að nefndin  skyldi gera fjölþætta lífskjarakönnun.Í niðurstöðum nefndarinnar kom fram,að vinnutími hér væri mjög langur og grunnkaup frekar lágt. Sem fyrr segir hefur vinnutíminn lítið styttst síðan.Kaup hefur mjakast upp á við en þó eru kjör lægst launuðu verkamanna enn allt of lág og erfitt að lifa sómasamlegu lífi af því.

 Hinn langi vinnutími hér á landi er mikið vandamál og kemur niður á fjölskyldulífi í landinu. Stytting vinnutímans mundi stórbæta fjölskyldulífið  og gera foreldrum kleift að eyða meiri tíma með börnum sínum. Öllum er ljóst,að mikil þörf er á því í dag að bæta fjölskyldulífið í landinu.

 

Mikið styttri vinnutími hjá ESB

 

Vinnutíminn er mikið styttri á hinum Noðurlöndunum en hér og  í löndum Evrópusambandsins er vinnutíminn mikið styttri. Meðalvinnutími í löndum ESB er nú 38,6 stundir á viku.Í Noregi er vinnutíminn mikið styttri en hér en þó getur verkafólk lifað sómasamlega af dagvinnulaununum. Yfirvinna þekkist varla enda mjög erfitt að fá leyfi fyrir yfirvinnu. Í járniðnaðinum í Noregi er  vinnutíminn aðeins 33 stundir á viku.Takmarkið hér  á að vera að ná vinnutímanum niður eins og á hinum Norðurlöndunum og að hækka laun verkafólks til samræmis við það sem þar  tíðkast.

 

Björgvin Guðmundsson

.

 

Birt í Fréttablaðinu 16.nóvember 2006


    

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn