Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Slítur Framsókn ríkisstjórninni?

laugardagur, 3. júní 2006

 

Stjórnmálamenn og sérfræðingar í stjórnmálum hafa undanfarið verið túlka úrslit sveitarstjórnarkosninganna.Ekki eru menn alveg á eitt sáttir um úrslitin. Menn eru þó sammála um það,að kosningarnar hafi verið mikið áfall fyrir Framsóknarflokkinn. Fylgið bókstaflega hrundi af Framsókn í kosningunum. Flokkurinn fékk 11,8 % miðað við  22,9 % í sveitarstjórnarkosningunum fyrir 4 árum. Ljóst er,að  kjósendur voru refsa Framsóknarflokknum fyrir þjónkun við íhaldsstefnu  ríkisstjórnarinnar  í rúman áratug. Það var ekki verið refsa sveitarstjórnarmönnum Framsóknar.Þeir hafa ekki staðið sig verr en aðrir sveitarstjórnarmenn.

 

Forustan lemur hausnum við steininn

 

  Þrátt fyrir afhroð í nýafstöðnum kosningum lemur forusta Framsóknar hausnum við steininn og segir,að úrslitin hafi engin áhrif á stjórnarsamstarfið! Það er engu líkara en Framsókn ætli fremja sjálfsmorð. Flokkurinn virðist ætla ganga út í opinn dauðann.Það eina,sem gæti bjargað Framsóknarflokknum er flokkurinn sliti stjórnarsamstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn strax eða næsta haust. Það eru næg ágreiningsefni. Framsókn gæti slitið stjórninni vegna aðfarar Sjálfstæðisflokksins Íbúðalánasjóði  en  íbúðalánin voru  stærsta mál Framsóknar í síðustu þingkosningum.Boðskapur kjósenda til forustu Framsóknar í nýafstöðnum kosningum var alveg skýr:Hingað og ekki lengra.Ekki frekari þjónkun við íhaldið. Um leið og Framsókn sýnir,að hún ætli breyta um stefnu  og hætta láta íhaldið valta yfir sig fyrri  kjósendur Framsóknar traust á flokknum á ný.Sú hætta er vísu fyrir Framsókn,að efnt verði til nýrra kosninga, ef Framsókn slítur stjórninni en forsætisráðherra er með þingrofsvaldið og getur ráðið því hvort þing verður rofið. Auðvitað þorir Framsókn ekki í kosningar næsta haust.Hún þarf tíma til næsta vors til þess undirbúa kosningar. Það væri því betra fyrir Framsókn leyfa nýrri stjórn taka við fram kosningum.

 

Samfylkingin hélt sjó

 

 Hvernig fóru aðrir flokkar út úr sveitarstjórnarkosningunum? Samfylkingin hélt sjó. Hún fékk svipað fylgi og í síðustu þingkosningum en aðeins minna en í sveitarstjórnarkosningunum fyrir 4 árum. Flokkurinn fékk 30% en í þingkosningunum fékk flokkurinn  30,95% og í sveitarstjórnarkosningunum fyrir  4 árum fékk flokkurinn 31,4%.Kosningaúrslitin í Reykjavík voru flokknum nokkur vonbrigði. Þar  fékk flokkurinn 27,3 % og 4 borgarfulltrúa. Það  er vísu sama tala borgarfulltrúa og flokkurinn hafði í R-listanum. En flokkurinn hafði vonast til 5 borgarfulltrúa.Það er ljóst,að flokkurinn fékk talsvert minna fylgi en flokkurinn fékk í Reykjavík í þingkosningunum.Hver er ástæðan? Er saga Alþýðuflokksins hér endurtaka sig? Alþýðuflokkurinn fékk alltaf minna fylgi í  borgarstjórnarkosningum en í þingkosningum í  Reykjavík.Ástæðan var sú,að ákveðinn hópur Alþýðuflokksmanna kaus alltaf Sjálfstæðisflokkinn í borgarstjórnarkosningum. Vonandi er ekki einhver hópur Samfylkingarmanna kjósa Sjálfstæðisflokkinn í borgarstjórnarkosningum.

Sjálfstæðisflokkurinn tók vísu upp stefnu Samfylkingarinnar í mörgum málum í kosningunum.Og  nokkrir fyrrverandi Alþýðuflokksmenn,sem kölluðu sig hægri krata, voru með mikinn áróður gegn Samfylkingunni og Ingibjörgu Sólrúnu og  reyndu skapa óánægju með Samfylkinguna. Þessi áróður var áberandi í Blaðinu. Þar var í raun um óbeinan áróður ræða fyrir því kjósa Sjálfstæðisflokkinn.

 

Stjórnarandstaðan í landsmálum kom vel út

 

  Sjálfstæðisflokkurinn getur unað vel við úrslit sveitarstjórnarkosninganna.Flokkurinn fékk 41,6%  miðað við 40,7% fyrir 4 árum.Í síðustu þingkosningum fékk Sjálfstæðisflokkurinn aðeins 33,68%. Það var mikið áfall fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

 Vinstri græn og Frjálslyndir geta verið ánægð með kosningaúrslitin. Þessir flokkar unnu báðir á en þó einkum Vinstri græn. Segja ,að stjórnarandstaðan í landsmálum hafi komið vel út úr kosningunum og fengið aukið fylgi. Það lofar góðu fyrir væntanlegar þingkosningar.

 

Björgvin Guðmundsson

Fjölmiðlar skýra frá því að Halldór Ásgrímsson sé að íhuga að láta af embætti flokksformanns og forsætisráðherra vegna  úrslita sveitarstjórnarkosninganna.Verði málið tekið fyrir á væntanlegum miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins. Ef af þessu verði muni Finnur Ingólfsson hugsanlega taka við formennsku í flokknum til bráðabirgða,a.m.k. Geir Haarde mundi þá taka við embætti forsætisráðherra og Framsókn fá embætti fjármálaráðherra.

Birt í Fréttablaðinu 30.mai 2006



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn