Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Hvers vegna lög um eignarhald á fjölmiðlum?

sunnudagur, 2. maí 2004

 

 

Í Kastljósi í sjónvarpinu 25.apríl sl. var rætt um lög ríkisstjórnarinnar um eignarhald á fjölmiðlum. Mörður Árnason þingmaður Samfylkingarinnar sagði í þættinum,að forsætisráðherra væri í nöp við Bónusfeðga og þess vegna vildi hann lög um eignarhald á fjölmiðlum,sem í raun væri stefnt gegn Norðurljósum einum. Mörður sagði,að Davíð Oddsson væri að gera Ísland að “bananalýðveldi”. Fréttamaður sjónvarpsins hrökk við þegar Mörður talaði um Ísland sem bananalýðveldi.

  Hvað veldur því að alþingismaður tekur svo sterkt til orða um forsætisráðherra landsins? Ástæðan er sú,að þingmaðurinn telur,að forsætisráðherra láti  afstöðu sína til einstaks fyrirtækis ráða  gerðum sínum varðandi lagasetningu um eignarhald á fjölmiðlum. Eða með  öðrum orðum: Þingmaðurinn telur,að geðþóttaákvörðun ráði afstöðu forsætisráðherra. Það er alvarleg   ásökun.

 En jafnvel þó  ásökun þingmannsins væri rétt ættu samráðherrar að geta tekið í taumana  svo og þingmenn stjórnarflokkanna. En gera þeir það? Svo virðist ekki vera. Í fyrstu virtist vera ágreiningur milli formanna stjórnarflokkanna um frumvarp forsætisráðherra um eignarhald á fjölmiðlum. En svo var ekki lengi. Glíma forsætisráðherra við utanríkisráðherra stóð stutt. Forsætisráðherra hafði betur í þeirri glímu eins og ávallt áður.Utanríkisráðherra og formaður Framsóknarflokksins átti um tvennt að velja: Að samþykkja frumvarp forsætisráðherra og fá stól oddvita ríkisstjórnarinnar 15.september n.k. eða að standa á eigin sannfæringu  varðandi fjölmiðlana og missa af stól forsætisráðherra í haust. Hann valdi fyrri kostinn. Var einhver hissa?

  Eftir að formenn stjórnarflokkanna náðu saman virtist enginn í stjórnarliðinu hafa  sjálfstæða skoðun á máli þessu nema Kristinn Gunnarsson þingmaður Framsóknar. Það er þess vegna sem Jón Ásgeir Jóhannesson segir í viðtali við DV 26.apríl sl.,að  svo virðist sem hér á landi sé dulbúið einræði. Einn maður taki ákvörðun fyrir alla hina í stjórnarliðinu.Jón Ásgeir segir,að lögin um fjölmiðlana feli í sér eignaupptöku og ofbeldi gegn Norðurljósum. Málið verði lagt fyrir dómstólana strax daginn eftir lögfestingu þess.Fullyrðing Jóns Ásgeirs felur í sér  alvarlega ásökun á hendur forsætisráðherra.

 

 

Hvers vegna  lagði Sjálfstæðisflokkurinn svona mikla áherslu á það að  setja  skyndilega nú í vor lög um eignarhald á fjölmiðlum?Hvað hefur breytst í fjölmiðlaheiminum,sem gerði slíkt nauðsynlegt?Í rauninni hefur sáralítið breytst. Sjálfstæðismenn áttu áður tvö útbreiddustu dagblöðin,þ.e. Morgunblaðið og DV.Eftir að flokksblöðin,Alþýðublaðið,Tíminn og Þjóðviljinn gáfu upp öndina  voru Sjálfstæðismenn einráðir á blaðamarkaðnum. Enginn hafði áhyggjur af því. Ekki var talað um nauðsyn þess að setja lög um eignarhald þessara fjölmiðla til þess að koma í veg fyrir að þeir væru misnotaðir. Síðan kom Fréttablaðið til sögunnar. Svo virðist,sem einhver  skjálfti hafi byrjað í  Sjálfstæðisfokknum eftir að Baugur  eða Jón Ásgeir Jóhannesson eignaðist Fréttablaðið. Ekkert liggur þó fyrir um pólitískar skoðanir eigenda Fréttablaðsins.Talað hefur verið um,að sennilega væri Jón Ásgeir Sjálfstæðismaður! En það virðist ekki duga Sjálfstæðisflokknum. Jón Ásgeir verður að hlýða flokksforustu Sjálfstæðisflokksins og það gerir hann ekki. Reiðarslagið fyrir Sjálfstæðisflokkinn kom þegar Baugur eða Jón Ásgeir keypti ráðandi hlut í DV. Ef Mbl. hefði eignast DV  hefði Sjálfstæðisflokkurinn ekkert minnst á nauðsyn þess að takmarka eignarhald á fjölmiðlum!

Nú  munaði það litlu,að bæði Fréttablaðið og DV  hættu að koma út. Bæði þessu blöð urðu gjaldþrota og það var ekki sjálfgefið að nýir aðilar kæmu til  skjalanna til þess að halda rekstri þeirra áfram. Ef Baugur hefði ekki keypt Fréttablaðið hefði það líklega hætt að koma út. Ef Baugur hefði ekki keypt DV hefði Mbl. keypt það eða blaðið hætt útkomu. Svo virðist  því sem Baugur hafi tryggt fjölbreytni á blaðamarkaðnum með því að kaupa bæði DV og Fréttablaðið.

  Menn virðast einkum hafa áhyggjur af fréttaflutningi og skrifum dagblaðanna Nú veldur það  Sjálfstæðisflokknum t.d. miklum áhyggjum,að DV  er mjög hvasst í allri gagnrýni og ræðst hart að öllum,einnig valdhöfum. Hins vegar hafa menn minni áhyggjur af Stöð 2 og Norðurljósum. Baugur hefur   eignast  stóran hlut í Norðurljósum. Og það hentar Sjálfstæðisflokkum  í áróðrinum að  draga það fram,að Baugur eigi nú orðið ráðandi hlut í tveimur dagblöðum og sjónvarpsstöð.Að mínu mati skiptir eignarhaldið ekki höfuðmáli. Það sem skiptir hins vegar mestu máli í þessu sambandi er hvernig eigendur þessara fjölmiðla fara með  þá. Eigendur Mbl. hafa undanfarin ár farið vel með blaðið. Það er opið fyrir mismunandi sjónarmiðum og þess verður ekki vart að það  sé misnotað í þágu  eigenda eða Sjálfstæðisflokksins. Hið sama er að segja um  Stöð 2. Hún er ekki misnotuð í þágu eigenda eða í þágu ákveðins  stjórnmálaflokks. Á meðan þessir fjölmiðlar eru ekki misnotaðir þarf engin sérstök lög um þá. Samkeppnislög duga.

 

Björgvin Guðmundsson

 

Birt í Morgunblaðinu 2.mai  2004

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn