Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Fátæku löndin fá ekki aðgang að mörkuðum ríku landanna

þriðjudagur, 23. desember 2003



 Alþjóðavæðingin hefur verið til góðs fyrir  heimsviðskiptin. Einkum hefur
 hagur iðnríkjanna batnað mikið við alþjóðavæðinguna. Þróunarlöndin hafa
hins
 vegar ekki fengið að taka fullan þátt í  alþjóðavæðingunni. Iðnríkin hafa
 ekki viljað  opna markaði sína fyrir hinum ódýru  landbúnaðarvörum
 þróunarlandanna. Þau vernda markaði sína svo mjög með niðurgreiðslum og
 tollmúrum, að ódýrar landbúnaðarvörur fátæku landanna komast ekki inn á
 þessa markaði nema að mjög litlu leyti. Ráðstefna
 Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar ( WTO) í Cancun í Mexico átti að freista
þess
 að leiðrétta þetta misrétti að einhverju leyti þannig að fátæku löndin kæmu
 landbúnaðarvörum sínum í auknum mæli inn á markaði ríku landanna. En
 ráðstefnan fór út um þúfur. Þegar á reyndi voru ríku löndin ekki tilbúin
til
 þess að opna markaði sína fyrir ódýrum landbúnaðarvörum fátæku landanna.
Það
 er talað mikið um það í ræðum á Vesturlöndum og í iðnríkjum um allan heim

 hjálpa þurfi þróunarlöndunum. Og víst láta Vesturlönd mikla aðstoð til
 fátækustu landanna. En þegar kemur að viðskiptahagsmunum iðnríkjanna þá
 vilja þau ekki missa neitt af sínum hagnaði. Iðnríkin vilja frjálsa verslun
 þar sem það hentar þeim en þau vilja ekki opna markaði sína fyrir ódýrari
 landbúnaðarvörum frá   fátæku löndunum. En besta hjálpin við fátæku löndin
 væri einmitt sú að  leyfa  þeim að taka að fullu þátt í frjálsri
 verslun,veita þeim aðgang að mörkuðum ríku iðnríkjanna.

  MEIRI PENINGAR TIL HERNAÐAR EN TIL FÁTÆKRA LANDA

   Einn virtasti hagfræðingur samtímans,Jeffrey D.Sachs, var hér á ferð
fyrir
 skömmu og gerði þessi mál að umtalsefni. Hann er sérstakur ráðgjafi Kofi
 Annan,aðalritara Sameinuðu þjóðanna í málefnum þróunarlandanna en Sþ. vinna
 nú að því  að draga úr fátækt í heiminum,  jafna lífskjörin. Sachs  gegndi
 stöðu prófessors  í hagfræði við Harvard háskóla í tvo áratugi.Hann hefur
 verið efnahagsráðgjafi margra ríkisstjórna  í  Austur-Evrópu,í S-Ameríku og
í Afríku.
 Sachs var mjög harðorður í ræðum og viðtölum hér  á  landi um ástandið í
 málefnum   fátæku landanna. Gagnrýndi hann iðnríkin,ekki síst Bandaríkin,
 harðlega fyrir aðgerðarleysi í þessum málum. Hann gagnrýndi einnig
 Bandaríkin harðlega fyrir fjáraustur til hernaðar í Írak og í öðrum
 heimshlutum og sagði,að framlög Bandaríkjanna til aðstoðar þróunarlöndum
 væru aðeins brot þeirra framlaga,er þau létu til hernaðar.

  SAMA VERNDARSTEFNAN Á ÍSLANDI

   Ísland hefur staðið með iðnríkjunum á alþjóðaráðstefnum  WTO  um
frjálsari
 viðskipti. Ísland hefur stutt þá stefnu iðnríkjanna að opna  mjög lítið
 markaðina fyrir ódýrum landbúnaðarvörum þróunarlandanna. Bandaríkin  hindra
 innflutning á ódýrri baðmull frá   fátækum löndum í Afríku til þess að
 vernda  eigin baðmullarframleiðslu. Ísland torveldar innflutning á kjöti og
 grænmeti til þess að vernda eigin framleiðslu. Verndarstefna Íslands  kemur
 lítið sem ekkert við þróunarlöndin. En í grundvallaratriðum er
verndarstefna Íslands í
 landbúnaðarmálum hin sama og verndarstefna Bandaríkjanna og
 Evrópusambandsins.Ísland vill frjáls viðskipti með fisk og iðnaðarvörur.
Það
 hentar Íslandi vel. En Ísland vill ekki sama frjálsræði í viðskiptum með
 landbúnaðarvörur.Það er því tvískinningur í málflutningi Íslands og
 iðnríkjanna um nauðsyn frjálsra viðskipta.Ljóst er,að ef  fullt frjálsræði
í
 viðskiptum   næði einnig til landbúnaðarvara mundi það verða til mikilla
 hagsbóta fyrir neytendur.Verð á landbúnaðarvörum mundi þá stórlækka.Það
yrði
mikil kjarabót fyrir almenning.

   Björgvin Guðmundsson
   viðskiptafræðingur

 

Birt í Mbl. 2003






N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn