Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Upplausn í Framsóknarflokknum

þriðjudagur, 4. október 2005

 

 

Mikill  ágreiningur er innan stjórnarflokkanna um það hvort Ísland eigi að leita eftir sæti í Öryggisráði Sþ. eða ekki.Harðasti andstæðingur framboðs Íslands til Öryggisráðsins er Einar Oddur Kristjánsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður fjárlaganefndar.Hann er þekktur fyrir að taka einarða afstöðu í málum og er óhræddur við að segja skoðanir sínar hvort sem þær falla í kramið hjá flokksforingjunum eða ekki. Formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra hefur einnig verið gagnrýninn á framboð Íslands til Öryggisráðsins  vegna mikils kostnaður við framboðið. Talið er að kostnaðurinn verði á bilinu 600-1200 millj.kr. Búist var við því,að fyrrverandi utanríkisráðherra,Davíð Oddsson, mundi falla frá framboði Íslands til Öryggisráðs Sþ. En svo varð ekki.Hann ákvað að láta eftirmann  sinn um málið.

 

Guðni: Málið í uppnámi

 

 En á meðan málið var í algerri óvissu vegna ágreinings innan stjórnarflokkanna fór forsætisráðherra vestur um haf og flutti ræðu á leiðtogafundi á vegum Sameinuðu þjóðanna í New York.Það kom öllum á óvart, að þar lýsti forsætisráðherra því yfir,að Ísland sæktist eftir sæti í Öryggisráði Sþ. Varaformanni Framsóknarflokksins og formanni þingflokks Framsóknarflokksins  brá  mjög við þessi tíðindi. Guðni Ágústsson varaformaður Framsóknarflokksins sagði í viðtali við Sjónvarpið, að mál þetta væri í uppnámi.Og Hjálmar Árnason formaður þingflokks Framsóknarflokksins sagði,að málið væri óafgreitt í þingflokki Framsóknarflokksins. Í kjölfar þessara yfirlýsinga birtist leiðari í Morgunblaðinu undir fyrirsögninni: Uppreisn í Framsóknarflokknum. Það er ekki á hverjum degi sem Morgunblaðið skrifar þannig um Framsókn. En  Mbl. benti á,að þetta væri í fyrsta sinn,sem formaður Framsóknarflokksins hefði ekki stjórn á sínu liði. Ljóst er,að ýmsum þingmönnum Framsóknarflokksins þykir mælirinn fullur.Ekkert samráð er haft við þingflokkinn.  Formaður Framsóknarflokksins  ákvað einn ásamt þáverandi forsætisráðherra að láta Ísland lýsa yfir stuðningi við innrás í Írak.Málið var ekki lagt fyrir þingflokk Framsóknarflokksins. Og nú ákvað formaður Framsóknar einn, að halda fast við það,að Ísland ætti að sækjast eftir sæti í Öryggisráðinu. Það var ekki lagt fyrir þingflokk Framsóknar.

 

Einræðislegir stjórnarhættir

 

 Formaður Framsóknar viðhefur hér  sömu stjórnarhætti og formaður Sjálfstæðisflokksins hefur viðhaft undanfarin ár,þ.e. einræði. Ekkert samráð er haft við þingflokkinn fyrr en eftir á. Þetta gerðist einnig þegar Símapeningunum var ráðstafað. Þar  var þinginu gefið langt nef. Án þess að bera það undir Alþingi var tilkynnt hvernig ráðstafa ætti 167 milljörðum kr. Þetta hefði hvergi getað gerst í siðmenntuðu landi nema á Íslandi. Í öllum vestrænum löndum hefði slíkt mál fyrst verið lagt fyrir þjóðþingið.   Ljóst er,að mælirinn er fullur. Þingmönnum finnst sem þeir séu hundsaðir í hverju málinu á fætur öðru.

Mörgum finnst,sem kostnaður við framboð Íslands til Öryggisráðs Sþ. sé allt of hár. Sáralitlir möguleikar eru á,að Ísland nái kosningu og þá er þessum peningum á glæ kastað þó einhver muni segja,að Ísland fái góða kynningu á erlendum vettvangi. En svo mörg brýn úrlausnarefni bíða  hér innan lands,að nær er að nota þessa fjármuni í þau.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn