Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Aldraðir fái sömu hækkun og launþegar

föstudagur, 16. október 2015

Á þessu ári hafa óvenju margir nýir kjarasamningar verið gerðir.Margar stéttir hafa samið um kaup sín og kjör.Það hefur verið samið um verulegar kauphækkanir, meiri en mörg undanfarin ár.Verkalýðshreyfingin og meirihluti þjóðarinnar taldi,að kjör hinna lægst launuðu væru orðin svo lág,að engin leið væri að framfleyta sér á þeim.Það var sátt um það í þjóðfélaginu,að lyfta yrði launum þeirra lægst launuðu veruega upp.1.mai sl. Sömdu Flóabandalagið,Starfsgreinasambandið og VR um,að lágmarkslaun skyldu hækka í 300 þúsund á mánuði á 3 árum.Lágmarkslaun skyldu hækka um 31 þúsund krónur á mánuði eða um 14,5% strax.Samiðn samdi um svipaða hækkun fyrir iðnaðarmenn. Miklar launahækkanir lækna og kennara Framhaldsskólakennarar sömdu um 44% launahækkun á 3 árum, þar af fengu þeir 11% hækkun vegna úrskurðar gerðardóms í deilunni um kjör BHM.Grunnskólakennarar sömdu um 33% launahækkun á 3 árum og 11% til viðbótar gegn afsali kennsluafsláttar.Læknar sömdu um 25-40% launahækkun á 3 árum.Hjúkrunarfræðingar sömdu um 23,9% launahækkun á 4 árum og BHM fékk 13% launahækkun á 2 árum.Mjólkurfræðingar sömdu um 18% launahækkun,blaðamenn fengu 16% launahækkun og þannig mætti áfram telja.Meðaltalslaunahækkun 12 kjarasamninga á þessu ár er 14% eða svipuð og launahækkun verkafólks. Aldraðir eiga að fá sömu hækkun Aldraðir og öryrkjar eiga að fá sömu hækkun á lífeyri sínum og launþegar fengu á á sínum launum ,þ.e 14-14,5%.En ríkisstjórnin hefur neitað því.Hún vill aðeins láta lifeyrisþega fá 9,4% hækkun og ekki fyrr en á næsta ári.Lífeyrisþegar fá enga hækkun í 8 mánuði. Björgvin Guðmundsson . > > > . . l .


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn