Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Frv. um afturköllun kjaraskerðingar frá 2009 flutt af Hreyfingunni á alþingi

mánudagur, 25. febrúar 2013

Frumvarp um afturköllun kjaraskerðingar aldraðra og öryrkja frá 1.júlí 2009 hefur verið tekið á dagskrá alþingis.Flutningsmenn frumvarpsins eru Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, aðrir þingmenn þess flokks og Lilja Mósesdóttir.Margrét Tryggvadóttir fylgdi frumvarpinu úr hlaði 24.janúar sl. Lífeyrissjóður skerði ekki lífeyri aldraðra og öryrkja frá TR Frumvarpið kveður á um það, að kjaraskerðing aldraðra og öryrkja, sem tók gildi 1.júlí 2009 verði afturkölluð.Þar er um að ræða eftirfarandi: Hætt verði að telja greiðslur úr lífeyrissjóði með tekjum við útreikning á grunnlífeyri aldraðra og öryrkja frá almannatryggingum og útreikningur grunnlífeyris verði færður til fyrra horfs eins og hann var fyrir 1.júlí 2009.Frítekjumark vegna atvinnutekna aldraðra verði hækkað úr 40 þús. kr. á mánuði í 100 þús. kr. á mánuði, þ.e. eins og það var fyrir 1.júlí 2009. Frítekjumarkið hjá öldruðum verður þá hið sama og það er hjá öryrkjum en það var ekki lækkað 2009. Skerðingarhlutfall tekjutryggingar verði lækkað úr 45% í 38,25% og verði hið sama og það var fyrir 1.júlí 2009. Heimild lífeyrisþega til þess að velja á milli frítekjumarks og þess að telja 60% af atvinnutekjum til tekna verði komið á aftur.Afnumið verði að tekjutengja aldurstengda örorkuuppbót. Kjaraskerðingin átti að vera tímabundin Margrét Tryggvadóttir lagði áherslu á það í framsöguræðu sinn, að kjaraskerðingin frá 1.júlí 2009 hefði átt að vera tímabundin og var það tekið fram í athugsasemdum með frumvarpinu.Þáverandi félagsmálaráðherra hefði nefnt 3 ár í því sambandi.Sagði Margrét nauðsynlegt að afturkalla kjaraskerðinguna nú.Hún hefði verið mjög tilfinnanleg fyrir aldraða og öryrkja og verið sett á með mjög stuttum fyrirvara-Frumvarpinu var að lokinni fyrstu umræðu vísað til velferðarnefndar.-Ef til vill er mikilvægasta atriðið í afturköllun kjaraskerðingarinnar það, að þá fá þeir, sem misstu grunnlífeyrinn 2009, á miðju því ári, 34 þús. kr. hækkun lífeyris að öðru óbreyttu og miðað við, að þeir eigi rétt á fullum grunnlífeyri. Er meirihluti í þinginu fyrir afturköllun? Frumvarpið er flutt að lokunum viðræðum, sem fulltrúar kjaranefndar FEB áttu við formenn þingflokka allra flokka sl. haust og fram að áramótum en í þeim viðræðum var farið fram á það , að flutt yrði frumvarp um afturköllun kjaraskerðingarinnar frá 1.júlí 2009. Í viðræðunum lýsti Gunnar Bragi Sveinsson, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, því yfir, að hann styddi allar kjarakröfur kjaranefndar FEB .Illugi Gunnarsson,formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, kvaðst hlynntur fyrstu kjaraskröfunni, þe. afturköllun kjaraskerðingarinnar frá 2009. SES,Samband eldri sjálfstæðismanna, samþykkti á aðalfundi sínum 2012 að afturkalla ætti umrædda kjaraskerðingu. Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, var jákvæður gagnvart fyrstu kjarakröfu kjaranefndar FEB, þ.e. afturköllun kjaraskerðingar frá 2009.Með hliðsjón af góðum undurtektum þriggja formanna,Gunnars Braga,Illuga og Guðmundar og stuðningi Hreyfingarinnar eru góðar líkur á því að meirihluti sé fyrir frumvarpi um afturköllun kjaraskerðingar aldraðra og öryrkja frá 2009.Á það mun nú reyna í þinginu en kjaranefnd FEB hefur lagt á það áherslu, að alþingi yrði að taka kjaramál aldraðra í sínar hendur, þar eð ríkisstjórnin ætlaði ekki að afturkalla kjaraskerðingu aldraðra og öryrkja frá 2009.Þó var kjaraskerðingin tímabundin og síðustu forvöð fyrir ríkisstjórnina að afturkalla þessa kjaraskerðingu, þar eð kjörtímabilið er senn á enda og stutt í alþingiskosningar. Áskorun á nýjan formann Samfylkingar Þessi grein er skrifuð áður en úrslit í formannskjöri Samfylkingarinnar eru birt.En ég vil skora á nýjan formann Samfylkingarinnar að leysa kjaramál aldraðra og öryrkja.Mikilvægast í því efni er að afturkalla kjaraskerðinguna frá 1.júlí 2009. Nú þegar það liggur fyrir, að þingið er að fjalla um afturköllun kjaraskerðingarinnar frá 2009 skora ég á nýjan formann Samfylkingarinnar að beita sér fyrir því, að Samfylkingin og VG samþykki það þingmál,sem liggur fyrir um afturköllun eða flytji annað þingmál, sem hefði sömu áhrif.Einnig skora ég á nýjan formann að beita sér fyrir því, að kjaraskerðing ( kjaragliðnun) aldraðra og öryrkja á krepputímanum verði leiðrétt í áföngum. Björgvin Guðmundsson Birt í Mbl. 21.feb.2013


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn