Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Geir Haarde vill Framsókn áfram í stjórn

mánudagur, 26. mars 2007

Morgunblaðið birti stórt viðtal við Geir Haarde,forsætisráðherra, á sunnudag.Þar er Geir m.a. spurður um hvaða samstarfsaðila í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokkurinn vilji helst.Geir svarar: Framsókn. Svar Geirs kemur ekki á óvart, þar eð Framsókn hefur verið þæg í taumi allan þann tíma,sem hún hefur verið í stjórn með íhaldinu.Framsóknarflokkurinn hefur verið sannkölluð hækja í stjórnarsamstarfinu. Og nú er svo komið, að Framsókn er  að þurrkast út hvað fylgi varðar.Kjósendur eru að refsa Framsókn fyrir langa íhaldsþjónkun.

 

Aldraðir og öryrkjar “gleymdust”

 

Geir Haarde segir í viðtalinu við Mbl., að hann vilji halda áfram að bæta lífskjör Íslendinga. En hvernig hefur það starf til tekist fram til þessa? Það hefur tekist þannig, að kjör og aðstaða atvinnurekenda og fjármagnseigenda hefur verið stórbætt. Tekjuskattur fyrirtækja hefur verið lækkaður í 18% á sama tíma og skattur launþega er 35%. Fjármagnseigendur greiða aðeins 10% skatt og greiða ekkert meira til samfélagsins. Stjórnarflokkarnir hafa “ gleymt” öldruðum og öryrkjum,þegar þeir hafa verið að bæta kjör annarra í þjóðfélaginu. Aldraðir og öryrkjar hafa setið eftir. Loforð,sem gefið var 1995 um að þessir hópar fengju sömu hækkun á lífeyri sinn og launafólk,var svikið. Öryrkjar þurftu að leita til Hæstaréttar til þess að fá lögbundnar lífeyrisgreiðslur.Það er sama hvar borið er niður: Stjórnarflokkarnir hafa níðst á láglaunahópum þjóðfélagsins og þeim,sem minna mega sín.Þessir flokkar þurfa að fá frí í kosningunum 12.mai.

 

Björgvin Guðmundsson



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn