Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Borgarstjórn: Kosningaloforðin gleymd!

laugardagur, 24. júní 2006

 

 

Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks  og Framsóknar hefur nú tekið við í Reykjavík. Íhaldið fékk bæði borgarstjórann og forseta borgarstjórnar en það eru tvö aðalembætti borgarstjórnar.Framsókn fær fundarstjóra borgarráðs! Ljóst er að í þessu efni hefur Framsókn samið af sér. Auðvitað hefði Framsókn átt að fá forseta  borgarstjórnar úr því Sjálfstæðisflokkurinn fékk borgarstjórann.

 

Löngusker gleymd

 

  Stærsta kosningaloforð Framsóknar var að flytja ætti Reykjavíkurflugvöll á Löngusker í Skerjafirði. Segja má, að Framsókn hafi keyrt mestalla kosningabaráttuna á þessu loforði. Ekkert er minnst á Löngusker í nýjum málefnasamningi meirihlutans. Það loforð virðist gleymt. Það eina sem er sagt er, að ákveða eigi á kjörtímabilinu staðsetningu flugvallarins.Það er lítið annað en R-listinn hafði ákveðið. Annað stórt kosningaloforð Framsóknar var, að öll ungmenni ættu að fá 40 þúsund. króna frístundakort til þess að auðvelda þeim að stunda íþróttir og aðrar tómstundir.Þetta loforð virðist einnig hafa dottið upp fyrir í óðagoti Framsóknar við að komast upp í hjá íhaldinu.Nú er aðeins talað um að ræða eigi við íþróttafélögin um þetta mál og gefa út frístundakort síðar en engin upphæð er nefnd.

 

Skreyta sig með fjöðrum R-listans

 

 Eitt  stærsta málið í kosningunum voru málefni aldraðra.Mjög er loðið það sem nýi meirihlutinn segist ætla að gera í þeim málaflokki.Það, sem brennur heitast á öldruðum í Reykjavík, er skortur á hjúkrunarrými.Varðandi þau mál er lítið bitastætt að finna hjá nýja meirihlutanum. Nýi borgarstjórinn minntist á hjúkrunarheimili,sem R-listinn hafði sett í gang svo sem á Lýsisreitnum. En ekki dugar að skreyta sig með fjöðrum frá R-listanum.Fleira verður að koma til. Nýi meirihlutinn talar einnig um að hefja undirbúning að byggingu íbúða fyrir aldraða. Það er gott svo langt sem það nær en hjúkrunarheimilin eru mikilvægari að mínu mati. Þar er þörfin brýnust.

 

Framsókn svíkur kosningaloforð

 

Framsókn lofaði gjaldfrjálsum leikskóla en það loforð verður svikið. Í staðinn er talað um að lækka leikskólagjöld um 25%! R-listinn hafði þegar byrjað að lækka leikskólagjöld og Samfylkingin og Vinstri græn boðuðu gjaldfrjálsan leikskóla.Miklu skiptir að

 halda leikskólunum snuðrulaust gangandi,tryggja starfsfólk og greiða því mannsæmandi laun. Undir forustu Steinunnar Valdísar borgarstjóra R-listans voru laun starfsfólks á leikskólum hækkuð og með því tókst að tryggja rekstur leikskólanna en áður voru þeir  við það að stöðvast.Margir íhaldsmenn gagnrýndu þessa ráðstöfun R-listans.

 

Launaútgjöldin  gagnrýnd

 

Sjálfstæðisflokkurinn er nú byrjaður að hnýta í R-listann fyrir fjármálastöðu borgarinnar en ekki var minnst á þau mál í kosningabaráttunni.Segir Sjálfstæðisflokkurinn,að nýir launasamningar hafi kostað meira en  talið var og sagt áður.Mjög er þó óljóst það sem Sjálfstæðisflokkurinn segir í þessu efni.Það er ekkert nýtt, að nýir launasamningar kosti meira en áætlað er.Bæði ríki og sveitarfélög hafa fundið fyrir því. En ljóst er, að nýi meirihlutinn er  að búa Reykvíkinga undir að fallið verði  frá fleiri kosningaloforðum en þegar er komið í ljós.

 Þegar íhaldið missti meirihlutann í Reykjavík 1978 var ástandið í fjármálum borgarinnar svo slæmt eftir meira en hálfrar aldar valdatímabil Sjálfstæðisflokksins,að ekki var unnt að borga út laun borgarstarfsmanna nema með sérstökum ráðstöfunum.  

 

 

Íhaldið fær Orkuveitina

 

 Framsókn hefur afhent íhaldinu forustu Orkuveitunnar fyrstu tvö árin. Er það athyglisvert, þar eð árásir íhaldsins á Framsókn  ( Alfreð Þorsteinsson) vegna Orkuveitunnar voru mjög hatrammar. Var í því sambandi talað um óráðsíu og  ævintýrafjárfestingar.Nú er sá,sem stóð fyrir  árásunum á Framsókn, gerður að formanni Orkuveitunnar! Hefur hann þegar gefið í skyn,að risarækjueldi Orkuveitunnar verði slegið af. Er ljóst,að borgarfulltrúi Framsóknar lætur allt yfir sig ganga aðeins, ef hann fær að tilheyra meirihlutanum.

 

Björgvin Guðmundsson

fyrrverandi borgarfulltrúi

 

Birt í Fréttablaðinu 23.júní 2006

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn