Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Engin breyting með Davíð sem utanríkisráðherra

sunnudagur, 15. ágúst 2004

 

 

 

Það er nú ljóst,að Davíð Oddsson verður utanríkisráðherra 15.september n.k.Þeir Halldór munu því hafa stólaskipti.Þetta þýðir litla sem enga breytingu í utanríkismálum.Í þeim málum hefur ekki hnífurinn gengið á milli þeirra félaga. T.d. voru þeir alveg samstíga í  

Íraksmálinu. Þeir studdu báðir algerlega innrás Bandaríkjanna og Breta í Írak og tóku ákvörðun um það mál án þess að leggja það fyrir ríkisstjórn eða alþingi. Skylt er að leggja öll meiriháttar utanríkismál fyrir utanríkismálanefnd alþingis. Það gerðu þeir ekki og brutu því ákvæði laga og þingskapa þar um.

 

Vilja báðir ríghalda í þoturnar

 

 Í varnarmálum Íslands hafa þeir tvímenningar einnig verið algerlega sammála. Þeir hafa báðir viljað ríghalda í 4 vopnlausar herþotur og raunar viljað ríghalda í það litla sem eftir er af varnarliðinu hér enda þótt Bandaríkin telji enga þörf á varnarliði hér lengur og vilji flytja herþoturnar á brott.

 

Kemur Davíð í veg fyrir aðild að ESB?

 

 

 Eina málið,sem þeir tvímenningar eru ekki alveg sammála um er afstaðan til Evrópusambandsins.Halldór var fremur jákvæður gagnvart Evópusambandinu en Davíð má ekki heyra það nefnt. Með Davíð sem utanríkisráðherra verður því algerlega komið í veg fyrir að Ísland gangi í ESB í bráð. Hafi Halldór haft einhverja drauma um að hann gæti þokað málum í ” rétta átt” varðandi Ísland og ESB eftir að hann væri orðinn forsætisráðherra eru þeir draumar nú orðnir að engu.Davíð  mun gæta þess að Ísland haldi sig algerlega utan ESB jafnvel þó Noregur gangi inn.

 

Einn og einn segir þó,að Davíð gæti skipt um skoðun í þessu  máli á einni nóttu og því vilji hann sjálfur vera utanríkisráðherra þegar og ef það gerist.

 

Björgvin Guðmundsson

 

"Þeir studdu báðir algerlega innrás Bandaríkjanna og Breta í Írak og tóku ákvörðun um það mál án þess að leggja það fyrir ríkisstjórn eða alþingi. Skylt er að leggja öll meiriháttar utanríkismál fyrir utanríkismálanefnd alþingis. Það gerðu þeir ekki og brutu því ákvæði laga og þingskapa þar um."

 

 

 

 

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn