Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Vilja afnema jafnréttislögin!

mánudagur, 19. apríl 2004

 

Umræðan um skipan í embætti hæstaréttardómara heldur áfram. Sjálfstæðismenn hafa verið að færa sig upp  á skaftið og  herða áróður gegn jafnréttislögunum. Eru margir þeirra nú farnir að tala um að fella jafnréttislögin úr gildi. Heimdallur gerir t.d. kröfu til þess. M.ö.o. ef lögin eru ekki Sjálfstæðismönnum að skapi er best að fella þau úr gildi!

 

Ekki sjálfstæð hugsun  í Sjálfstæðisflokknum!

 

  Annars er það athyglisvert hve Sjálfstæðismenn standa þétt að baki Birni Bjarnasyni í þessu máli. Það heyrir til algerra undantekninga,ef Sjálfstæðismaður gerir athugasemd við embættisveitingu Björns.Þó hafa margir Sjálfstæðismenn talað fyrir auknu jafnrétti karla og kvenna áður.   Það virðist gleymt nú. Það er eins og ekki komist að sjálfstæð hugsun í Sjálfstæðisflokknum. Allir verða að elta foringjana og tala eins og þeir.

 

Átti Björn að skipa konu?

 

Jón G.Hauksson ritar grein um mál þetta á vefinn www.heimur.is. Hann endar grein sína á spurningunni: Átti Björn að skipa konu. Og síðan svarar hann sjálfum sér og segir: Nei hann átti ekki að skipa konu. Hann og fleiri horfa fram hjá því,að Hjördís Hákonardóttir  var talin  hæfari en Ólafur Börkur. Raunar má telja,að ekki aðeins Hjördís Hákonardóttir  sé hæfari en Ólafur Börkur heldur einnig Eiríkur Tómasson og Ragnar Hall. Þess vegna braut Björn Bjarnason ekki aðeins jafnréttislögin.Hann braut einnig stjórnsýslulög.

 

Björgvin Guðmundsson

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn