Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Er Framsókn orðin að íhaldsflokki?

föstudagur, 28. maí 2004

 

Jónas Jónsson frá Hriflu átti stóran þátt í stofnun Framsóknarflokksins árið 1916. En það sem,er þó enn merkilegra er það,að hann átti einnig jafnvel enn stærri þátt í stofnun Alþýðuflokksins sama árið Hugsun Jónasar var sú,að þessir tveir flokkar mundu vinna saman,Alþýðuflokkurinn,flokkur vinnandi fólks við sjávarsíðuna og Framsóknarflokkurinn,flokkur vinnandi fólks til sveita. Frá fyrstu tíð var samvinnustefnan  eitt helsta baráttumál Framsóknarflokksins.

 

Stjórn vinnandi stétta

 

Jónas Jónsson sá fyrir sér,að vinnandi fólk til sjávar og sveita mundi  stjórna Íslandi og halda íhaldinu frá völdum. Strax 1927 rættist þessi draumur Jónasar að nokkru leyti en þá myndaði Framsóknarflokkurinn ríkisstjórn með hlutleysi Alþýðuflokksins og Tryggvi Þórhallsson varð forsætisráðherra.Jónas varð sjálfur dóms-og kirkjumálaráðherra   þá 42ja ára að  aldri.Magnús Kristjánsson varð fjármálaráðherra. En það var ekki fyrr en 1934,að Framsóknarflokkurinn og Alþýðuflokkurinn mynduðu saman ríkisstjórn. Sú stjórn   hlaut viðurnefnið stjórn hinna vinnandi stétta.Kom hún mörgum stórmerkum umbótamálum í framkvæmd,t.d. á sviði atvinnumála, í frystiiðnaði, saltsíldarframleiðslu o.fl. Einnig setti stjórnin fyrstu lögin um alþýðutryggingar( almannatryggingar).Flokkarnir  hafa oft unnið saman í ríkisstjórnum síðan,t.d. í vinstri stjórninni 1956-1958 en  samstarf flokkanna hefur gengið misjafnlega.Í þingkosningunum 1956 höfðu flokkarnir kosningabandalag. Draumur Jónasar frá Hriflu um náið og mikið samstarf þessara flokka hefur  þó ekki  rætst að fullu.

 

“Allt er betra en íhaldið”

 

 

 Meðal forustumanna Framsóknarflokksins hafa verið  margir róttækir leiðtogar,sem haldið hafa tryggð við upphaflega stefnu Framsóknarflokksins,samvinnuhugsjónina og baráttu fyrir bættum kjörum vinnandi stétta. Má þar  m.a. nefna auk Jónasar,  Hermann Jónasson,Eystein Jónsson og Steingrím Hermannsson. Tryggvi Þórhallsson mælti hin fleigu orð: “Allt er betra en íhaldið” og Steingrímur Hermannsson segir í ævisögu sinni,að hann hafi verið sammála þessum orðum. Hann segir í ævisögu sinni,að Hermann faðir hans hafi aldrei farið í stjórn undir forustu Sjálfstæðisflokksins og hann hafi orðið fyrir verulegum áhrifum frá föður sínum varðandi afstöðuna til Sjálfstæðisflokksins.

 Á undanförnum árum hefur Framsóknarflokkurinn  stöðugt verið að fjarlægjast meira upphafleg stefnumið sín. Ekki er lengur minnst á samvinnustefnuna í  Framsóknarflokknum.Eftir skipbrot SÍS virðist Framsókn aðhyllast einkarekstur og hlutafélagaformið. Þetta fellur vel að stefnu Sjálfstæðisflokksins,sem alla tíð hefur lagt höfuðáherslu á einkarekstur  og gróðahyggju. Framsóknarflokkurinn er einnig að breytast úr bændaflokki í þéttbýlisflokk. Það er því fátt orðið sem minnir á gamla Framsóknarflokkinn,sem Jónas frá Hriflu átti stóran þátt í að stofna.

 

Í herleiðingu hjá Sjálfstæðisflokknum

 

 Framsóknarflokkurinn undir núverandi forustu vill fremur vinna með Sjálfstæðisflokknum en flokki jafnaðarmanna,Samfylkingunni.Það virðist ekki bera svo mikið á milli stefnumála Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins í dag.Báðir flokkarnir hafa lagt höfuðáherslu á einkarekstur og einkavæðingu. Báðir flokkarnir hafa lagt meiri áherslu á skattalækkanir atvinnureksturs en skattalækkanir einstaklinga eða almennings.. Báðir flokkarnir hafa  látið velferðarkerfið mæta afgangi  við ráðstöfun á fjármagni með þeim afleiðingum að  velferðarkerfið hefur  stórlega veikst, kjör aldraðra hafa versnað í samanburði við kjör láglaunafólks á almennum vinnumarkaði  og aðrir hópar,sem minna mega sín,eins og öryrkjar,atvinnulausir,einstæðar mæður o.fl .hafa staðið höllum fæti í lífsbaráttunni undir stjórn þessara tveggja flokka..

  Væntanlega ratar Framsóknarflokkurinn inn á rétta braut á ný,þegar herleiðingunni í vistinni hjá Sjálfstæðisflokknum lýkur. En núverandi forusta Framsóknarflokksins hugsar  meira um að halda völdum en að  koma fram stefnumálum  samvinnu og félagshyggju.Völd, prjál  og hégómi er keppikefli Framsóknar í dag.

 

Björgvin Guðmundsson     

 

Birt í Morgunblaðinu 28.mai  2004      



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn