Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Lífeyrir aldraðra skammarlega lágur

laugardagur, 1. ágúst 2015

Stjórnvöld fara skammarlega með lífeyrisþega.Lífeyrir almannatrygginga til aldraðra og öryrkja er svo lágur,að engin leið er að lifa mannsæmandi lífi af honum.Einhleypur ellilîfeyrisþegi,sem einungis hefur tekjur frá almannatryggingum, fær 187 þús.kr á mánuði eftir skatt.Megnið af þeirri fjárhæð fer í húsaleigu, ef viðkomandi þarf að búa í leiguhúsnæði.Það er þá lítið eftir fyrir mat,fatnaði,rafmagni og hita,síma, tölvukostnaði og öllum öðrum útgjöldum. Ástandið er miklu betra hjá þeim,sem búa í eigin húsnæði.En þó er afkoman erfið.Þessar smánarbætur aldraðra frá TR duga rétt fyrir allra brýnustu nauðsynjum en ekkert er til fyrir skemmtunum,gjöfum eða öðru til þess að lífga upp á tilveruna.Ekki er inni í myndinni að reka bíl af þessum lágu bótum. Eldri borgarar hafa byggt upp það þjóðfélag,sem við búum við í dag.Eldri borgarar eiga það því inni að fá að búa með reisn síðustu ár ævi sinnar. Vantar 134 þús. Kr.á mánuði Samkvæmt neyslukönnun Hagstofunnar eyðir hver einstaklingur til jafnaðar 321 þús.kr.á mánuði í neyslu.Engir skattar eru innifaldir í þeirri tölu.Ellilífeyrir Tryggingastofnunar er hins vegar aðeins 187 þús.kr á mánuði eftir skatta hjá einhleypingi. Það vantar því 134 þús.kr.á mánuði til þess að lífeyrir TR dugi fyrir meðaltals neysluútgjöldum.Með því að engir skattar eru inni í neyslukönnun Hagstofunnar er um sambærilegar tölur að ræða.Þegar litið er á þessar tölur verður ljóst hvað stjórnvöld búa illa að eldri borgurum.Hér hefur verið fjallað um þá eldri borgara,sem einungis hafa tekjur frá almannatryggingum.En ástandið er lítið betra hjá þeim,sem hafa lífeyri úr lífeyrissjóði vegna mikilla skerðinga á tryggingabótum hjá Tryggingastofnun ríkisins.Þorri lífeyrisþega hefur fremur lélegan lífeyrissjóð,70-100 þús.kr.á mánuði.Þeir,sem hafa 70 þús.kr. á mánuði úr lífeyrissjóði eru engu betur settir en þeir,sem aldrei hafa greitt i lífeyrissjóð.Tryggingastofnun skerðir lífeyri þeirra um hátt í 70 þús.kr á mánuði. Hækka verður lífeyri um 20%strax Augljóst er,að hækka verður ríflega lífeyri eldri borgara, eigi þeir að geta lifað mannsæmandi lïfi af honum.Það er lágmark að hækka lífeyrinn um 40-50 þús.kr.á mánuði enda þótt stefna eigi að 134 þús króna hækkun til þess að ná neysluvviðmiði Hagstofunnar.Það vill svo til ,að ríkisstjórnin skuldar öldruðum og öryrkjum einmitt 44 þúsund króna hækkun á mánuði (20%) ætli hún að standa við loforðið um að leiðrétta lífeyrinn vegna kjaragliðnunar á krepputímanum.En það þarf einmitt að hækka lífeyri um 20 % til þess að framkvæma þá leiðréttingu.Þessari leiðréttingu var lofað í kosningabaráttunni 2013.Við hana verður að standa strax. Björgvin Guðmundsson Birt í Fréttablaðinu 8.jan. 2015


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn