Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Unnt að leysa kjaramál aldraðra með einu pennastriki

fimmtudagur, 30. mars 2006

 

 

Nú er komið að athöfnum segir Afa, félag aðstandenda aldraðra. Tími orða,nefnda og skýrslna er liðinn.Undir þetta skal tekið. Það er löngu ljóst hvar skórinn kreppir að í málefnum aldraðra.Það þarf ekki að skipa fleiri nefndir til þess að finna það út.Það er þess vegna með ólíkindum,að ríkisstjórnin skyldi fyrir skömmu skipa enn eina nefndina undir forystu Ásmundar Stefánssonar til þess að fjalla um málefni aldraðra.Áður hafði átt að vera starfandi samráðsnefnd aldraðra og ríkisvaldsins um sömu málefni. Sú nefnd starfaði lítið sem ekkert. Það læðist að manni sá grunur,að tilgangur þessara nefndaskipana sé að drepa  málum á dreif og tefja málin.

 

Hjón geti verið saman

 

  Mikil áhersla er nú lögð á búsetumál aldraðra meðal þeirra,sem fjalla um þessi mál.Það er vel. Skortur á hjúkrunar- og dvalarheimilum  fyrir aldraða er eitt stærsta vandamálið í þessum málaflokki í dag.Langir biðlistar æpa á aðgerðir.Mestur er skorturinn á hjúkrunarrými en einnig vantar þjónustuíbúðir og dvalarheimili.Það er í tísku núna að tala gegn stofnunum.Sumir segja: Við viljum ekki fleiri stofnanir fyrir aldraða heldur  minni heimili og heimilislegri.Það er gott svo langt sem það nær.En það verður ekki framhjá því gengið, að þeir eldri borgarar,sem eru orðnir lasburða og veikir þurfa vistun á hjúkrunarheimilum.Það skiptir engu máli hvaða nafn við gefum þessum hjúkrunarheimilum.Þar verður  að vera hjúkrun og  læknisaðstoð.Það er ágætt að tengja saman hjúkrunarheimili og dvalarheimili  og stuðla að því að hjón geti verið saman eða í námunda við hvort annað.

 

Eldri borgarar haldi fjárhagslegu sjálfstæði

 

Þess verður nú vart, að stjórnmálamenn reyna að slá um sig með tillögum um aðgerðir í þessum málum og sumir þeirra telja sig  hafa fundið upp nýjar aðgerðir til lausnar á vandanum. Rétt er að skoða allar slíkar tillögur. Félag eldri borgara í Reykjavík hefur lagt áherslu á,að eldri borgarar sem fara á vistheimili haldi fjárhagslegu sjálfstæði sínu. Lífeyririnn sé ekki rifinn af fólkinu án þess að spyrja það, heldur fái fólkið sinn lífeyri og greiði síðan sjálft fyrir þá þjónustu sem það fær. Það  þarf ekki að byggja  ný heimili til þess að koma þessari breytingu á. Það er unnt að framkvæma hana strax í öllum starfandi vistheimilum aldraðra.

 

Kjaramálin auðveld viðfangs

 

  Þó búsetumálin séu mikilvæg eru kjaramál aldraðra ekki síður brýn.Þau eru að því leyti til auðveldari viðfangs en búsetumálin,að unnt er að leysa þau strax. Það tekur tíma að byggja ný hjúkrunarheimili og dvalarheimili fyrir aldraða en það er unnt að hækka lífeyri aldraðra með einu pennastriki strax. Það eru nógir peningar til og því er ekki eftir neinu að bíða. Allir eru sammála um að kjör aldraðra eru óviðunandi.Stjórnmálamenn taka nú undir kröfur almennings í því efni. Helmingur ellilífeyrisþega er með ráðstöfunartekjur innan við 115 þúsund á mánuði. Það er skammarlega lágt hjá einu ríkasta þjóðfélagi heim.Einstaklingur þarf 167 þúsund  á mánuði fyrir utan skatta  til framfærslu samkvæmt neyslukönnun Hagstofu Íslands.Það má hækka lífeyri upp í þá upphæð í áföngum. Landssamband eldri borgara hefur krafist þess,að lífeyrir eldri borgara hækki um 17 þúsund á mánuði strax.Það væri gott skref.

 Stjórnarflokkarnir hafa haft af eldri borgurum 40 milljarða sl. 11 ár miðað við þau loforð,sem gefin voru 1995.Það er kominn tími til að borga eitthvað til baka af þeirri upphæð.

 

Björgvin Guðmundsson

 

Birt í Fréttablaðinu 11.mai 2006



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn