Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Viktoría Þorvaldsdóttir

mánudagur, 14. maí 2007

Viktoría Þorvaldsdóttir fæddist 23. apríl 1937 í Reykjavík.  Hún lést
mánudaginn 7. maí síðastliðinn.. Foreldrar hennar voru Þorvaldur Ármannsson
f. 15. júlí 1903
, d. 28. mars 1992 og Jóna Margrét Jónsdóttir f. 5. september 1910, d. 15.
september 1990. Systkini Viktoríu eru Dagrún Þorvaldsdóttir f. 1. apríl
1934, Guðný Þorvaldsdóttir f. 5. september 1943 og Jóhannes Þorvaldsson f.
28. júlí 1946, d. 25. október 1974.
  Eiginmaður Viktoríu er Magnús Gunnar Sigurjónsson frá Velli í Hvolhreppi
f. 27. nóvember 1932, foreldrar hans voru Sigurjón Þorkell Gunnarsson,
smiður, f. 30. maí 1904, d. 9. febrúar 1960 og Signý Vilhelmína
Magnúsdóttir, húsmóðir, f. 20. júní 1910, d. 11. janúar 1965.
  Börn þeirra eru sjö: 1) Margrét Magnúsdóttir f. 7. maí 1955. Eiginmaður
hennar Einar Björn Steinmóðsson f. 3. ágúst 1963. 2) Sigurjón Magnússon f.
21. apríl 1957, d.  31. mars 1975. 3) Þorvaldur Magnússon f. 12. ágúst 1958.
4) Vilhjálmur Magnússon f. 23. apríl 1961.Eiginkona hans Kristín Þ.
Sigurðardóttir f. 26. júlí 1964. 5) Gunnar Magnússon f. 1. júní 1964.
Sambýliskona hans Guðrún Rut Erlingsdóttir f. 6. júlí 1963. 6) Bjarni
Magnússon f. 17. febrúar 1966. 7) Signý Magnúsdóttir f. 23. apríl 1972.
Eiginmaður hennar Arnar Þór Diego f. 17. janúar 1969
  Viktoría ólst upp í vesturbænum í Reykjavík.  Hún giftist eftirlifandi
eiginmanni sínum 18. ágúst 1955 og hófu búskap á jörðinni Bakkavelli í
Hvolhreppi. Árið1971 fluttu þau til Reykjavíkur og bjuggu þar í eitt og
hálft ár. Frá árinu 1973 hafa þau búið á Stokkseyri þar sem þau stofnuðu
 garðyrkjustöðina Heiðarblóma uppúr 1990. Þar starfaði hún við blómarækt til
dauðadags.
  Útför hennar fór fram í Ríkissal Votta Jehóva í Reykjavík laugardaginn 12.
maí og var jarðsett í Stokkseyrarkirkjugarði.

P.S.
Setja blóm í stað krossins
Greiðandi: kt. 271132 4849, Magnús Sigurjónsson, Stjörnusteinum 9, 825
Stokkseyri.
Sími: 6942711

Stutt kveðja

Dauðinn kemur okkur alltaf jafnmikið á óvart.  Enda þótt Viktoría Þorvaldsdóttir hafi verið  haldin mjög alvarlegum sjúkdómi um skeið  og heilsu hennar hafi hrakað mikið bárum við ættingjar hennar og aðstandendur þá von í brjósti, að hún mundi komast til heilsu á ný. En sú von rættist ekki og harmafregnin barst fyrr en við áttum von á.

 Ég kynntist Viktoríu fyrir 54 árum, er ég kvæntist systur hennar,Dagrúnu. Þær systur voru mjög samrýmdar og alla tíð var mikill samgangur á milli fjölskyldna okkar. Fórum við hjónin margar ferðirnar austur í sveit að Bakkavelli með allan barnaskarann á meðan börnin voru lítil en þau undu sér sérstaklega vel í sveitinni. Viktoría var góð heim að sækja. Hún var mjög hlý og börnin löðuðust að henni.Viktoría var alltaf glaðleg  og það var gott að vera í návist hennar..

 Síðustu ártatugina bjuggu þau Viktóría og Magnús að Stjörnusteinum 9 á Stokkseyri ( Hátúni). Þar komu þau hjónin upp myndarlegri gróðrarstöð, Heiðarblóma. Viktoría vann mikið í gróðrarstöðinni enda hafði hún mikið yndi af blómum. Hún var mjög dugleg og myndarleg húsmóðir.

Við Dagrún sendum Magnúsi, börnunum og fjölskyldum þeirra innilegar  

samúðarkveðjur vegna fráfalls Viktoríu 

Björgvin Guðmundsson

il




 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn