Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Á að svíkja öryrkja eina ferðina enn?

þriðjudagur, 2. nóvember 2004



Fjárlagafrumvarpið fyrir árið  2005 er nánast tilbúið og verður lagt fyrir
alþingi,þegar það kemur saman í byrjun oktober.Ekki er þar  að finna viðbótar
framlag til öryrkja til þess að standa við  samkomulagið við þá.Er því ljóst,að
ríkisstjórnin ætlar að svíkja öryrkja eina ferðina enn. Heilbrigðisráðherra
sagði  í fyrra,þegar  hann sveik öryrkja um 500 millj. kr. að hann mundi efna
samkomulagið að ári,þ.e. núna.En hann hefur verið beygður af íhaldinu.
Fráfarandi forsætisráðherra sagði í viðtali við fjölmiðla,að öryrkjar fengju
ekki meiri peninga. Það er því alveg ljóst,að það á að svíkja öryrkja um þessar
500 milljónir enda þótt Jón Kristjánsson hafi viljað standa við samkomulagið
og hafi viljað láta öryrkja fá þessa peninga eins og um hafði verið samið. En
Jón fær þessu ekki ráðið. Hann ætti því að segja af sér í mótmælaskyni.

Fara öryrkjar í mál?

Öryrkjar munu ætla í mál við ríkisvaldið enn á ný, ef ekki verður staðið við
samkomulagið við  þá. Þeir  munu bíða fram undir áramót til þess að sjá hvort
ríkisstjórn eða alþingi breytir fjárlagafrumvarpinu til þess að unnt verði að
standa við samkomulagið við öryrkja. En ef fjárlagafrumvarpið verður ekki
leiðrétt að þessu leyti fara öryrkjar í mál og eru öryggir með að vinna það.Er
það ekki gott fyrir ríkisstjórnina, ef það spyrst einu sinni enn til útlanda,
að ríkisstjórni sé að níðast á öryrkjum og brjóta á þeim samkomulag.

Hvað var samið um?

Í  umræðum um samkomulag öryrkja við ríkisstjórnina,hafa stuðningsmenn
ríkisstjórnarinnar  gefið í skyn,að það hafi verið eitthvað    óljóst hvað
samið hafi verið um,þar eð samkomulagið hafi verið munnlegt.Á þessum forsendum
hafa stjórnarliðar reynt að halda því fram,að þeir væru að efna samkomulagið
með því að láta 1 milljarð í það,þegar kostnaðurinn er 1 ½ milljarður. Meira að
segja Jón Kristjánsson hefur fallið í þennan pytt í röksemdafærslu.

Reiknað út mánuði fyrir kosningar

En það lá fyrir löngu fyrir kosningar 2003 hver kostnaðurinn yrði við það að
efna samkomulagið að fullu.Heilbrigðis-og tryggingaráðuneytið ritaði
Tryggingastofnun ríkisins bréf 9.apríl 2003. og óskaði eftir að reiknað yrði út
hvað framkvæmd samkomulagsins kostaði. Tekið var fram,að  grunnlífeyrir
þeirra,sem yrðu öryrkjar 18 ára ætti að tvöfaldast. En síðan ætti hækkun
grunnlífeyris að skerðast um 421 kr. fyrir hvert ár,sem aldur öryrkja hækkaði
um þar til náð væri 67 ára aldri en þá yrði engin hækkun. ( Ávallt miðað við
það hvenær menn yrðu öryrkjar).Þessi atriði samkomulagsins eru alveg skýr  og
hafa alltaf legið fyrir. Það tók Tryggingastofnun 2 daga að reikna  út
kostnaðinn. Hann lá fyrir 11.apríl 2003 og var alls 1.528.800 kr. Kostnaður upp
á hálfan annan milljarð lá því fyrir mánuði fyrir kosningar.Það þýðir því ekki
fyrir stjórnarliða að koma nú og segja,að samkomulagið hafi verið eitthvað
óljóst.Það var alveg skýrt og kostnaður við framkvæmd þess lá nákvæmlega fyrir
11.apríl 2003.

Björgvin Guðmundsson

 

 

Birt í Morgunblaðinu 2.nóvember 2004


ArGoSoft Mail Server Pro for WinNT/2000/XP, Version 1.8 (1.8.6.0)

© ArGo Software Design, 1999-2004



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn