Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Kvótakerfið bitnar á Akureyringum.ÚA selt burtu.

fimmtudagur, 15. janúar 2004

 

 

Kvótakerfið hefur nú bitnað illilega á Akureyringum. ÚA,Útgerðarfélag Akureyringa,hefur verið selt eigendum á Rifi á  Snæfellsnesi. Og enda þótt nýir eigendur segist ætla að reka fyrirtækið áfram á Akureyri  er engin trygging fyrir því fremur en í fyrri tilvikum,þegar skip og kvótar eru seldir burtu úr byggðarlögum. Akureyringar eru mjög óánægðir með söluna á ÚA. Þeir gerðu sér  vonir um,að félög á Akureyri mundu kaupa ÚA,t.d. KEA sem hafði áhuga á kaupum. En Guðmundur Kristjánsson útgerðarmaður á Rifi o.fl. buðu betur. Það var Eimskipafélag Íslands,sem seldi  ÚA en ÚA var  eign Brims,sjávarútvegshluta Eimskips.

 

 VERÐUR ÚA BÚTAÐ SUNDUR?

 

Kaupverð ÚA var  9 milljarðar og þar af lánaði Landsbankinn 6 milljarða. Sérfræðingar telja verðið allt of hátt og að rekstur ÚA muni ekki standa undir verðinu. Bæjarstjórinn á Akureyri,Kristján Júlíusson,kallar verðið fyrir ÚA upplausnarverð. Hann segir,að  engir möguleikar séu fyrir nýja eigendur ÚA að láta rekstur  félagsins standa undir verðinu. Einu möguleikar þeirra til þess að standa í skilum séu að selja eignir ÚA. Þeir muni því búta félagið í sundur og selja hluta  þess til þess að geta staðið  í skilum. Er bæjarstjórinn mjög áhyggjufullur vegna þessa. Talið er,að hafa þurfi 1 milljarð í hagnað eftir skatta til þess að  fá viðunandi ávöxtun miðað við hið háa verð sem greitt var fyrir ÚA..

 

AKUREYRINGAR HÖFÐU ENGAR ÁHYGGJUR AF VESTFIRÐINGUM

 

Í tilefni af sölu  ÚA  frá Akureyri til Snæfellsness höfðu fjölmiðlar samband við Einar Odd Kristjánsson,alþingismann og varaformann fjárlaganefndar. Var hann spurður hvort hann hefði ekki áhyggjur af sölunni og þætti Landabankans í henni.Hann sagði: Landsbankinn var bara að vinna vinnuna sína. Akureyringar höfðu engar áhyggjur af Vestfirðingum,þegar Guðbjörgin var selt frá Vestfjörðum til Akureyrar. Eins og menn muna var því lofað,þegar Guðbjörgin var seld,að hún yrði áfram gerð út frá Ísafirði en það var svikið. 

 

GALLAR KVÓTAKERFISINS KOMA FRAM

 

Salan á ÚA  til Rifs sýnir kvótakerfið ógrímuklætt. Það eru mörg sambærileg eldri dæmi.Bent er á,að ÚA hafi áður hagað sér illa gagnvart öðrum. T.d. hafi  félagið flutt  aflaheimildir burt frá Hrísey  og frá  Ólafsvík.Þorbjörn í Grindavík flutti aflaheimildir burt frá Bakka í Bolungarvík þrátt fyrir yfirlýsingar um annað. HB á Akranesi sameinaðist Miðnesi og flutti aflaheimildirnar upp á Akranes.Árnes í Þorlákshöfn keypti á sínum tíma frystihúsið á Stokkseyri  til þess að fá aflaheimildir og lofaði að reka það áfram. Það var svikið. Hér að framan var minnst á Guðbjörgina frá Ísafirði. Sala hennar til Akureyrar var mikil  blóðtaka fyrir Vestfirði.Það var svikið að gera hana áfram út frá Ísafirði.Kvótar  hafa verið fluttir frá mörgum byggðarlögum úti á landi vegna sölu á skipum þaðan. Þannig var t.d. um sölu frá  Breiðdalsvík og frá fleiri stöðum á Austfjörðum. Það er unnt að nefna slík dæmi allt í kringum landið. Kvótakerfið hefur lagt mörg byggðarlög  úti  á landi í rúst. Þegar skip og kvótar eru fluttir frá byggðarlögunum er öllu fögru alltaf lofað. En  síðan er það svikið.

 

Björgvin Guðmundsson

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn