Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Mikil óánægja með samkomulagið við eldri borgara

föstudagur, 1. september 2006

  Mikil óánægja er nú með “samkomulag” ríkisstjórnar og  Landssambands eldri borgara um kjör eldri borgara.Málið hefuir verið mikið rætt á útvarpsstöðvunum,einkum á Útvarpi Sögu en mikill fjöldi fólks hringir alltaf í þá útvarpsstöð og segir álit sitt á málefnum líðandi stundar.Hafa allir,sem tjáð hafa sig um “samkomulagið”, undantekningarlaust verið mjög óánægðir með það. Eldri borgurum finnst eins og þeir hafi verið blekktir. Þeir benda á,að hækkunin á lífeyri aldraðra sé nánast sú sama eða minni en ASÍ samdi um í júní  og tilskilið var, að eldri borgarar fengju og því hafi ekkert komið út úr samkomulagi LEB og ríkisstjórnar til viðbótar varðandi hækkun á lífeyri.Sumir eldri borgarar,sem hringt hafa í Útvarp Sögu segja,að þeir fái aðeins nokkrar krónur út úr “samkomulaginu”.

Hafði LEB ekkert umboð?

 Eldri borgarar,sem hringt hafa í útvarpsstöðvarnar gagnrýna einnig harðlega að Landsamband eldri borgara skuli hafa samið við ríkisstjórnina. Telja þeir  að LEB hafi ekki haft neitt umboð til slíkra samninga. Landasamband eldri borgara hafi ekkert samningsumboð fyrir eldri borgara.Í Landssambandinu sé aðeins hluti eldri borgara og eldri borgarar yfirleitt hafi ekki gefið LEB neitt umboð til samninga.

Menn eru mjög hissa á því ,að Ólafur Ólafsson formaður LEB skuli hafa skrifað undir samkomulag við ríkisstjórnina, þar eð samkomulagið færi öldruðum sáralítið og hann hafi ekki haft umboð til að skrifa undir.

“Lofa” mörg ár fram í tímann

 Þá gagnrýna margir eldri borgarar,að ríkisstjórnin skuli gera “samkomulag”,sem gildi til margra ára þegar ríkisstjórnin eigi aðeins eftir 9 mánuði af valdatímabili sínu.Telja menn það alveg út í hött að ríkisstjórnin sé að “lofa” einhverjum aðgerðum í málefnum aldraðra langt fram í tímann.Nær hefði verið að ríkisstjórnin gerði meira á meðan hún er við völd.

 Einar Árnason hagfræðingur eldri borgara hefur komið fram í fjölmiðlum og sagt,að “samkomulagið” við eldri borgara sé ekkert samkomulag! Fulltrúar LEB hafi skrifað undir nefndarálit með fyrirvara og lýst yfir,að þetta væri aðeins fyrsta skref á langri göngu. En hvað sem ummælum Einars líður þá var “samkomulagið” kynnt af forsætisráðherra og formanni LEB  í fjölmiðlum með miklum lúðrablæstri  sem samkomulag. Og almenningur skildi það þannig,að um samkomulag væri að ræða. En spurningin er aðeins sú hvort fulltrúar LEB höfðu heimild til þess að skrifa undir samkomulagið.Ég óskaði eftir því áður en gengið var frá samkomulaginu,að ekki yrði skrifað undir og sagði sporin frá nóvember 2002 hræða. Þá var skrifað undir smánarsamninga,sem fulltrúar eldri borgara sáu eftir að hafa skrifað undir..

Björgvin Guðmundsson



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn