
Össur Skarphéðinsson,formaður Samfylkingarinnar,spurðist fyrir um það á alþingi hvort Ísland væri reiðubúið til þess að beita Ísrael viðskiptaþvingunum vegna síendurtekinna árása Ísraels á Palestínuaraba.Halldór Ásgrímsson,utanríkisráðherra,svaraði því til,að Ísland væri ekki tilbúið til þess. Sagði hann,að viðskiptaþvinganir mundu ekki skila árangri og hin Norðurlöndin væru andvíg slíkum ráðstöfunum.
Undarleg afstaða
Svar íslenskra stjórnvalda varðandi þetta efni er undarlegt. Viðskiptaþvingunum var beitt gegn Írak og einnig gegn Suður-Afríku á sínum tíma og flest vestræn ríki voru þá sammála um að beita slíkum ráðstöfunum.Nú er allt í einu talað um að slíkar ráðstafanir skili ekki árangri. Að sjálfsögðu er alltaf spurning hvað viðskiptaþvinganir skila miklum árangri.En viðskiptabann eða viðskiptaþvingun er ekki aðeins ráðstöfun til þess að skaða viðkomandi ríki viðskiptalega heldur er hér einnig um að ræða táknræna og sálræna aðgerð. Ef fjölmörg vestræn ríki beita Ísrael viðskiptaþvingunum er ég ekki í nokkrum vafa um,að það mundi hafa áhrif á stefnu Ísrael gagnvart Palestínuaröbum. Alþjóðasamfélagið getur ekki lengur setið hjá aðgerðarlaust og horft á Ísrael leggja íbúabyggðir Palestínuaraba í rúst. Ísrael sendir skriðdreka og flugvélar til þess að gera árásir á íbúðahverfi Palestínuaraba. Konur og börn eru myrt í þessum árásum. Alþjóðasamfélagið segir ekkert við þessu
USA heldur hlífiskildi yfir Ísrael
.Ef allt væri með felldu ættu öll vestræn lönd að fordæma þessar árásir Ísraels. En Bandaríkin halda hlífiskildi yfir Ísrael og hið sama gera mörg önnur ríki,jafnvel Ísland. Stjórnvöld á Íslandi þurfa ekki að fara eftir öðrum ríkjum,þegar þau taka afstöðu til árása Ísraels á Palenstínuaraba. Ísland getur sjálft tekið afstöðu. Ísland á að fordæma harðlega árásir Ísraels og Ísland á að standa að viðskiptaþingunum gegn Ísrael.
Björgvin Guðmundsson
|