Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Steingrímur Hermannsson jafnaðarmaður?

mánudagur, 29. mars 2004

 

 

Steingrímur Hermannsson  fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins  var í viðtali í Silfri Egils sunnudaginn 26.mars sl. Athygli vakti,að í viðtalinu talaði Steingrímur eins og jafnaðarmaður. Hann gagnrýndi það,að velferðarkerfið hefði þurft að láta undan síga undanfarin ár í tíð núverandi stjórnarflokka. Hann kvað nauðsynlegt að efla velferðarkerfið.Nefndi hann í því sambandi heilbrigðiskerfið og menntakerfið. Hvort tveggja þyrfti að efla. Hann gagnrýndi niðurskurðinn til Landspítala,Háskólasjúkrahúss og  kvað það alrangt að Íslendingar eyddu of miklu í heilbrigðiskerfið.Þá kvaðst Steingrímur vera andvígur skólagjöldum. Hann kvað alla,án tillits til efnahags,þurfa að eiga möguleika á námi við Háskóla Íslands.

 

  Gagnrýndi græðgisstefnuna

 

Steingrímur sagði,að óhjákvæmilegt hefði verið að hefja einkavæðingu  og ekki taldi hann meiri fákeppni nú en áður nema síður væri. Ekki væri því þörf á sérstökum ráðstöfunum gegn fákeppni. Hins vegar gagnrýndi Steingrímur harðlega græðgisstefnuna. Hún hefði gengið út í öfgar. Hann kvaðst sakna þess,að bankarnir sinntu þjónustuhlutverki við almenning og fyrirtæki eins og áður hefði verið. Nú væru bankarnir teknir að ráðskast með  atvinnufyrirtækin og farin að búta þau í sundur. Það væri ekki hlutverk þeirra. Kvaðst hann sammála gagnrýni Árna Magnússonar,félagsmálaráðherra  í því efni.

 

Innrásin í Írak óráð

 

Steingrímur gagnrýndi innrásina í Írak harðlega og sérstaklega gagnrýndi hann,að  íslensk stjórnvöld skyldu styðja hana. Hann sagði,að það væru í gangi átök milli tveggja menningarheima,bókstafstrúarmanna múslima og bókstafstrúarmanna vestrænna  landa eins og Bush. Innrásin í Írak hefði gert illt verra. Það væri verra ástandið í heiminum í dag en fyrir innrásina og verra ástand í dag en eftir að Berlínarmúrinn féll.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn