Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Hvers vegna hrynur fylgi Framsóknar?

laugardagur, 19. febrúar 2005

 

Hvers vegna hrynur fylgi Framsóknarflokksins?Fréttablaðið birti úrslit skoðanakönnunar um fylgi flokkanna föstudaginn 4.febrúar sl. Samkvæmt þeirri könnun fengi Framsóknarflokkurinn 8%  atkvæða, ef þingkosningar færu fram í dag en 4% í  borgarstjórnarkosningum í Reykjavík.Þetta er algert fylgishrun hjá Framsóknarflokknum.Talsmenn Framsóknarflokksins vilja gera lítið úr þessu og segja,að  Framsókn fái mikið meira fylgi í kosningum en í skoðanakönnunum. Það hafi ávallt verið svo.

 

Framsókn hefur villst af leið

 

En einhver skýring hlýtur að vera á því,að Framsókn mælist með svona lítið fylgi í skoðanakönnunum. Jú  skýringin er  sú,að megn óánægja er meðal fyrri kjósenda Framsóknar með flokkinn.Kjósendum finnst flokkurinn hafa villst af leið og verið of leiðitamur Sjálfstæðisflokknum.Framsóknarflokkurinn var stofnaður til þess að berjast fyrir félagshyggju og samvinnustefnu en hefur nú um langt skeið hjálpað Sjálfstæðisflokknum við að framkvæma skefjalausa auðvaldsstefnu og peningahyggju.Misskipting í þjóðfélaginu hefur stóraukist,hinir ríku hafa orðið ríkari og hinir fátæku hafa orðið fátækari.Kjör aldraðra og öryrkja eru til skammar. Fátækt hefur aukist verulega í landinu.Mikil óánægja er einnig meðal kjósenda Framsóknar með stefnu flokksins og ríkisstjórnarinnar í Íraksmálinu.84% þjóðarinnar var andvíg því að Ísland skyldi leggja blessun sína yfir innrás Bandaríkjanna og Bretlands í Írak.Stór hluti Framsóknarflokksins er í þeim hópi.Framsóknarflokkurinn hefur alltaf áður stutt frið í heiminum en nú leggur formaður flokksins blessun sína yfir árás á annað  ríki  og vill ekki biðjast afsökunar á þeim mistökum  enda þótt í ljós hafi komið,að innrásin í Írak var gerð á fölskum forsendum.

 

Stóll forsætisráðherra ekki bætt ástandið

 

 Margir forustumenn Framsóknar bundu vonir við það,að fylgi flokksins mundi aukast við það,að  formaður flokksins settist í forsætisráðherrastólinn.En það hefur orðið þveröfugt. Fylgi flokksins hefur minnkað síðan formaður Framsóknar varð forsætisráðherra. Þetta er vegna þess,að  Framsókn fékk stólinn frá Davíð Oddssyni en ekki frá forseta Íslands eftir kosningar.Þetta voru einfaldlega  hrossakaup stjórnarflokkanna, sem gerð voru til þess að framlengja völd ríkissstjórnarinnar,sem tapaði fylgi í síðustu kosningum og hefði átt að fara frá völdum, ef eðlilegum lýðræðislögmálum hefði verið fylgt. Kjósendum Framsóknar finnst stóllinn of dýru verði keyptur. Málefnum Framsóknarflokksins hefur verið fórnað í hrossakaupum stjórnarflokkanna.Það er alger hégómi að sækjast eftir embætti forsætisráðherra,þegar staða Framsóknar er eins og hún er í dag.Flokkurinn hefði frekar átt að leggja áherslu á það að koma fleiri stefnumálum Framsóknarflokksins fram.En það gerði Framsókn ekki heldur mat meira hégómann.Þess vegna refsa kjósendur nú Framsóknarflokknum.

 

Björgvin Guðmundsson

Birt í Fréttablaðinu 19.febrúar  2005 

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn