Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Agnes Bragadóttir kemur Geir Haarde og Jóni Sigurðssyni til hjálpar

laugardagur, 17. mars 2007

Morgunblaðið birti athyglisverða forustugrein um auðlindamálið í gær. Þar gagnrýnir blaðið ríkisstjórnina harðlega fyrir að afgreiða ekki breytinguna á stjórnarskránni  og setja ákvæði um þjóðareign á auðlindum inn í stjórnarskrána.Segir  Morgunblaðið, að ríkisstjórnin geti ekki kennt stjórnarandstöðunni um lyktir málsins.Þessi leiðari vakti mikla athygli,þar eð það er ekki á hverjum degi sem Morgunblaðið gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega. En ljóst er,að Morgunblaðið hefur fengið bágt fyrir. Sjálfstæðisflokkurinn hefur tekið Morgunblaðið á beinið. Í dag bregður svo við,að á forsíðu Morgunblaðsins kveður við allt annan tón en í forustugreininni. Þar skrifar Agnes Bragadóttir grein og tekur upp hanskann fyrir ríkisstjórnina og segir,að lyktir auðlindamálsins séu stjórnarandstöðunni að kenna. Kemur hún með furðulega kenningu um það,að Össur Skarphéðinsson hafi komið með brellu sem ríkisstjórnin hafi séð við. Þessi kenning Agnesar er óskiljanleg. Jón Sigurðsson formaður Framsóknar tók það hvað eftir annað fram,að það væri ekki á dagskrá að hafa samráð við stjórnarandstöðuna um auðlindamálið. Það þýðir því ekki að koma eftir á og saka stjórnarandstöðuna um að hafa ekki viljað samstarf við ríkisstjórnina. Sjálfstæðisflokkurinn hafði lítinn áhuga á því að afgreiða auðlindamálið. Framsókn vildi afgreiða það en lét íhaldið semja tillögungreinina sem var svo óskiljanleg , að allir lögspekingar landsins lögðust gegn henni. Nokkrir þingmenn íhaldsins voru á móti tillögunni. Þegar svo var komið þorði ríkisstjórnin ekki að afgreiða málið án samþykkis stjórnarandstöðunnar. Fyrst vildi stjórnin ekki samráð við stjórnarandstöðuna en þegar allt var komið í óefni átti stjórnarandstaðan að skera stjórnina niður úr snörunni!

 

Björgvin Guðmundsson


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn