Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Gífurleg skerðing á ellilífeyri miðað við lágmarkslaun

fimmtudagur, 15. júní 2006

 

Fjármálaráðuneytið birti nýlega  tölur um hve mikið ellilífeyrir hefði hækkað frá 1996 í samanburði við hækkun neysluverðlags. Segir ráðuneytið,að ellilaun hafi hækkað um 80%

á tímabilinu miðað við 41% hækkun neysluverðlags.Hér er beitt blekkingum. Átt er við rúmlega 300 ellilífeyrisþega,sem eru  á ”strípuðum” bótum.Aðrir hafa fengið mjög litla hækkun eða aðeins 18%. Þetta segir þó aðeins hálfa sögu,þar eð lágmarkskaup verkafólks hefur hækkað meira en neysluverðlag og því var lofað,þegar hætt var að láta  ellilífeyri hækka sjálfvirkt í samræmi við hækkun lágmarklauna, að sú breyting mundi ekki skerða kjör ellilífeyrisþega. Það loforð var svikið.

 

 Ellilíeyrir lækkað um 17,7 prósentustig

 

  Samkvæmt staðtölum Tryggingastofnunar ríkisins   2004   nam lífeyrir aldraðra,grunnlífeyrir,tekjutrygging og eingreiðsla 61,6 % af lágmarkslaunum verkafólks það ár en 1988 nam sami lífeyrir aldraðra 79,3 % af lágmarkslaunum.Lífeyrir aldraðra sem hlutfall af lágmarkslaunum hefur á þessu tímabili lækkað um 17,7 prósentustig.Árið 1995 nam ellílífeyrir 74,8% af lágmarkslaunum. Það er alveg sama hvort miðað er við 1988 eða 1995 :Það hefur orðið gífurleg skerðing á lífeyri aldraðra miðað við kjör verkafólks  á lágmarkslaunum.Þessar tölur tala sínum máli. Tölur fjármálaráðuneytis breyta þar engu um.Ellilífeyrir hefur ekki fylgt breytingum á lágmarkslaunum eins og lofað var 1995 af stjórnvöldum.

 

 

Skattbyrði eldri borgara hefur aukist

 

Auk þess bætist það við, að skattar á  lægstu laun hafa hækkað á þessu tímabili.Áður greiddu ellilífeyrisþegar engan skatt af tekjum sínum en í dag verða þeir að greiða háa skatta

Skattbyrði þeirra,sem hafa lægstu tekjurnar hefur aukist um 9,2 -15,3 prósentustig  á tímabilinu 1994-2004.Á sama tímabili hefur skattbyrði þeirra,sem hafa meðaltekjur aukist um 3,2-7,2 prósentustig og þeirra,sem hafa hæstu tekjur um 1,9-3,3 prósentustig.Af þessu er ljóst,að ríkisstjórnin  hefur verið að þyngja skattana á láglaunafólki og eldri borgurum,sem hafa einungis ellilaun og lítinn lífeyri.

Kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur breyst sem hér segir á tímabilinu 1990-2005: Hámarkslífeyrir eldri borgara ( kaupmáttur ráðstöfunartekna) hefur aukist um 18% en kaupmáttur allra í landinu hefur aukist um 50,6%. Eða m.ö.o.: Á  sama tíma og kaupmáttur almennings hefur aukist um rúm 50% hafa eldri borgarar verið skildir eftir og þeir hafa aðeins fengið þriðjung þeirrar kaupmáttaraukningar sem almenningur hefur fengið!

 

Eldri borgarar fá skattafslátt erlendis

 Mörg ríki veita eldri borgurum  skattafslátt með sérstökum skattleysismörkum fyrir ellilífeyrisþega.Þessi ríki verðlauna eldri borgara.Hér er þeim refsað.

 Lífeyrissjóðirnir voru stofnaðir til þess að bæta kjör íslenskra launamanna. Þeir áttu að veita lífeyrisþegum myndarlega viðbót við lífeyri frá almannatryggingum. En reynslan hefur orðið sú,að ríkið hrifsar til sín meirihlutann af því,sem lífeyrisþegar eiga  að fá eða 70%,sem ríkið tekur í skatta og skerðingar.Er ekki kominn tíma til  að leiðrétta ranglætið?

 

Björgvin Guðmundsson

 

Birt í Fréttablaðinu 15.júní 2006

 

 

 

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn