Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar

fimmtudagur, 19. júlí 2018

Bæta þarf kjör eldra fólks með því að hækka ellilífeyri og tryggja,að hann sé ekki undir fátæktarmörkum.Horfið verði frá krónu móti krónu skerðingu á sérstakri framfærsluuppbót öryrkja.Gera þarf átak í byggingu hjúkrunrheimila,þannig að komið verði til móts við þörfina að fullu á næstu 10 árum. Þannig hljóðaði stefna Vinstri grænna (VG) í málefnum aldraðra og öryrkja fyrir alþingikosningarnar haustið 2017. Og hverjar hafa efndirnar orðið? Hvað er VG að gera í ríkisstjórninni? VG fékk stjórnarforustu í ríkisstjórn þeirri, sem mynduð var eftir síðustu alþingiskosningar.VG hefur ekki lagt til,að lífeyrir verði hækkaður um eina einustu krónu á því rúma hálfa ári, sem flokkurinn hefur verið í stjórn. Samt hefur verið vakin sérstök athygli ríkisstjórnarinnar á því, að þeir lægst launuðu meðal aldraðra og öryrkja gætu ekki framfleytt sér af lífeyri þeirra, svo lágur væri hann.Katrínu forsætisráðherra og formanni VG hefur verið bent á, að ástandið væri svo slæmt hjá þeim verst stöddu, að aðgerðir þyldu enga bið. Þær yrði að gera strax. En það hefur verið eins og að tala við steinvegg. “Róttæki sósialistaflokkurinn“ hefur ekki brugðist betur við en Sjálfstæðisflokkurinn ( íhaldið) gerði í fyrri stjórn.Menn hafa undrast þetta og spurt sig hvað VG væri að gera í þessari ríkisstjórn! En hefur VG þá ekki brugðist betur við fyrir öryrkja og framkvæmt stefnumál sitt frá síðustu kosningum um, að hverfa frá krónu móti krónu skerðingu á sérstaktri framfærsluuppbót öryrkja? (Horfið var frá slíkri skerðingu hjá öldruðum um áramótin 2016/2017 í nýjum lögum um almannatryggingar.)Ríkisstjórn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins lofaði öryrkjum því um áramótin 2016/2017, að þessi krónu móti krónu skerðing hjá öryrkjum yrði afnumin fljótlega.Þessi ríkisstjórn sveik það! Þau svik hafa staðið í 17 mánuði. Katrín formaður VG og nú forsætisráðherra hafði gott tækifæri sem leiðtogi og verkstjóri ríkisstjórnarinnar til þess að leiðrétta málið gagnvart öryrkjum.En því miður: Í stað þess að bæta fyrir svikin tók VG undir svikin gagnvart öryrkjum með Framsókn og íhaldi og hefur viðhaldið krónu móti krónu skerðingunni áfram.Síðustu 6 mánuði hefur VG verið aðili að þessum grófu svikum með Framsókn og íhaldi. Ekker fjármagn til hjúkrunarheimila? Um átak í byggingu hjúkrunarheimila er það að segja, að enn hefur ekkert fjármagn verið tryggt til byggingar þeirra.Samkvæmt tillögu Alberts heitins Guðmundssonar alþingismanns,borgarfulltrúa og ráðherra var ákveðið að stofna framkvæmdasjóð aldraðra ,sem fjármagna átti byggingu hjúkrunarheimila. Öllum skattgreiðendum var gert að greiða ákveðna upphæð í þennan sjóð.En misvitrir stjórnmálamenn gátu ekki séð sjóðinn í friði og fóru að taka úr honum til annarra þarfa en hann var stofnaður til. Þess vegna er lítið í sjóðnum í dag. Ég tel, að þegar svo er komið, eigi ríkissjóður að greiða það fé til baka, sem tekið var á þann hátt úr sjóðnum (ófrjálsri hendi). Þess vegna á ríkið að leggja fram fé strax í dag til að unnt sé að byggja nægilega mörg hjúkrunarheimili.En það gerir núverandi ríkisstjórn ekki .Í staðinn segist hún ætla að fá fé til byggingar hjúkrunarheimila úr svokölluðum þjóðarsjóði en sá sjóður hefur ekki einu sinni verið stofnaður.Ég tel,að ekki muni fást neinir peningar úr slíkum sjóði fyrr en seint á næsta ári í fyrsta lagi. Ég hef hér rætt um nokkur helstu kosningaloforð VG í málefnum aldraðra.Því miður lítur ekki vel út með efndir þeirra.En hvað um samskipti VG við samtök eldri borgara,t.d. Félag eldri borgara í Reykjavík og LEB,landssamtökn.Hefur VG staðið sig betur í samskiptum við þau? Því miður.Svarið er nei.Félag eldri borgara í Reykjavík fór þess á leit við við forsætisráðherra að lífeyrir verst settu aldraðra yrði hækkður strax.Ég fór einnig fram á það í bréfi til Katrínar. En það er enginn asi á ríkisstjórn Vinstri grænna í þessum efnum. Stjórnin lofar ekki svörum fyrr en næsta vetur. Það er eins og forsætisráðherra og formaður VG skilji ekki alvöru málsins.Það er neyðarástand hjá öldruðum,sem einungis hafa lífeyri frá almannatryggingum ( strípaðan lífeyri).Lífeyrir þeirra dugar ekki fyrir brýnustu nauðsynjum.Þeir sem hafa þessi kjör verða ef til vill að neita sér um mat eða læknisaðstoð. Það er alvarlegt mál. Það verður strax að leysa úr því brýna vandamáli. Það þolir enga bið.Ekki dugar að fresta því fram á næsta vetur! Björgvin Guðmundsson Fréttablaðið 19.júlí 2018 Virus-free. www.avast.com


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn