Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Lætur Framsókn beygja sig?

þriðjudagur, 6. mars 2007

 

 

Sérkennileg deila er nú risin milli stjórnarflokkanna, íhalds og Framsóknar.Deilt er um það hvort setja eigi ákvæði í stjórnarskrá um sameign þjóðarinnar á fiskinum í sjónum. Ákvæði um þetta efni er í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og þar tekið skýrt fram, að  setja eigi á kjörtímabilinu í stjórnarskrá ákvæði um sameign þjóðarinnar á auðlindinni í sjónum. En ekki hefur verið staðið við þetta ákvæði, þegar 10 dagar eru eftir af starfstíma þingsins. Sá þingmaður Framsóknar, sem benti fyrstur á það, að  standa yrði við umrætt ákvæði stjórnarsáttmálans var Kristinn H.Gunnarsson ( hann var þá enn í framsókn. En ekki var hlustað á hann í því máli fremur en öðrum. Framsóknarmenn hefðu betur hlustað á Kristin  strax. Þá væru þeir ekki í þessum vandræðum í dag.

 

 Átti að svíkja ákvæðið?

 

Hvernig má það vera, að ekki sé enn búið  að efna þetta ákvæði stjórnarsáttmálans. Sif Friðleifsdóttir lýsti því yfir á nýafstöðnu flokksþingi Framsóknarflokksins, að ef umrætt ákvæði  yrði ekki efnt mundi það kosta stjórnarslit. Það er vitað, að Sjálfstæðisflokkurinn stendur í vegi fyrir efndum á þessu ákvæði og því væri það rökrétt, að Framsókn slyti stjórnarsamstarfinu, ef Sjálfstæðisflokkurinn léti sig ekki í málinu. Það vill Sif. Ekkert bólar á því, að Sjálfstæðisflokkurinnn gefi sig í þessu máli .Ef Framsókn gefur sig eftir stóru orðin missir flokkurinn þann litla trúverðugleika sem flokkurinn á eftir.En það væri eftir öðru,  að Framsókn léti beygja sig í þessu máli. Íhaldið hefur beygt Framsókn í hverju málinu á fætur öðru. Frægast var þegar Davíð beygði Halldór í málinu varðandi Þjóðhagsstofnun. Davíð ákvað að leggja stofnunina niður áður enn hann talaði við Framsókn. Og enda þótt Framsókn væri á móti því að leggja stofnunina niður  svínbeygði Davíð Framsókn í málinu. Fer eins í þessu máli? Beygir íhaldið Framsókn og kemur í veg fyrir, að ákvæðið um þjóðareign á  auðlindinni fari inn í stjórnarskrá?

 

Björgvin Guðmundsson



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn