Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Sjálfstæðisflokkurinn settur til hliðar í Reykjavík.Tók sína eigin gröf

mánudagur, 15. október 2007

Sjálfstæðisflokkurinn  hefur enn á ný verið  settur til hliðar við stjórn Reykjavíkurborgar.Flokkurinn missti völdin að þessu sinni fyriir klaufaskap. Það voru málefni Orkuveitunnar og REI,útrásarfyriirtækis  Orkuveitunnar,sem felldu Sjálfstæðisflokkinn  nú. Í rauninni átti Sjálfstæðisflokkurinn alls ekki að komast til valda  eftir síðustu borgarstjórnarkoningar. Flokknum tókst ekki að ná því markmiði sínu að fá meirihluta borgarfulltrúa. Flokkurinn fékk aðeins 7 fulltrúa þrátt fyrir harða hríð að Samfylkingunni og þeim flokkum,er áður höfðu myndað R-listann.Andstöðuflokkar Sjálfstæðisflokksins hefðu því getað  myndað meirihluta strax eftiir síðustu  borgarstjórnarkosningar. En   þá gerðist það, að sá flokkur,sem fékk minnst fylgi í kosningunum, Framsókn,gekk skyndilega til liðs við Sjálfstæðisflokkinn og myndaði með flokknum meirihluta í borgarstjórn.  Meirihlutinn var eingöngu   myndaður um völd og áhrif  en enginn málefnasamningur gerður þegar samstarfið var ákveðið. Til þess að fá Framsókn til samstarfs bauð Sjálfstæðisflokkurinn henni formennsku í borgarráði. Stjórnarsamstarfið með Sjálfstæðisflokknum mun áreiðanlega hafa haft áhrif á Framsóknarflokkinn í borgarstjórn.Framsóknarmenn voru farnir að líta á það  sem náttúrulögmál að þeir ynnu með Sjálfstæðisflokknum. Og það var ekkert fararsnið á þeim úr ríkisstjórn. Þeir ætluðu að sitja þar eins lengi og þeir gætu þó fylgið hryndi af þeim. En að lokum var það Sjálfstæðisflokkurinn,sem ítti þeim þar út. Sá flokkur  taldi Framsókn ekki lengur stjórntæka í landsmálunum.Það voru mikil mistök hjá Framsókn að mynda meirihluta með Sjálfstæðisflokknum  eftir síðustu borgarstjórnarkosningar.Nú hefur Framsókn leiðrétt þessi mistök, slitið samstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn  og  myndað meirihluta með Samfylkingunni og öðrum flokkum, sem áður voru í minnihluta. Því ber að fagna.Ég er mjög ánægður með það, að Framsóknarflokkurinn í borgarstjórn skuli á ný hafa tekið upp samvinnu við vinstri flokkana þar. Björn Ingi Hrafnsson,borgarfulltrúi Framsóknar sýndi mikið hugrekki með því að stíga þetta skref.
 
Mesta áfallið 1978
 
 Sjálfstæðisflokkurinn missti fyrst meirihluta sinn í borgarstjórn 1978 eftir að hafa verið við völd í Reykjavík í hálfa öld. Alþýðuflokkurinn,Alþýðubandalagið og Framsókn mynduðu þá meirihluta í borgarstjórn.Ósigur Sjállfstæðisflokksins 1978 var mikið áfall fyrir flokkinn. Úrslitin komu  Sjálfstæðisflokknum alveg á   óvart.Alþýðuflokkurinn fékk 2 borgarfulltrúa,Framsókn 1  en Alþýðubandalagið 5 fulltrúa og  vann stórsigur.Sjálfstæðisflokkurinn var  mikið hræddari um að missa meirihlutann 1970 en     1978. Það var ekkert vandamál fyrir  " vinstri"  flokkana að mynda meirihluta eftir kosningaúrsitin 1978. Flokkarnir höfðu starfað náið saman í borgarstjórn í mörg ár, höfðu flutt sameiginlegar ályktunartillögur og breytingatillögur við fjárhagsáætlun.Sameiginleg málefnaskrá  flokkanna var því  tilbúin löngu áður en flokkarnir náðu meirihluta. Þeir höfðu einnig orðið ásáttir um það áður en Sjálfstæðisflokkurinn féll, að  ráða ópólitiskan  borgarstjóra,embættismann,  ef   þeir næðu meirihluta í borginni.Það eru ýmsar ranghugmyndir á kreiki um meirihlutann 1978-1982,svo sem að sundrung hafi verið mikil en  það er alrangt. Samkomulag var mjög gott. Og samstarfið var að mörgu leyti mjög sérstætt   og hvíldi á  algeru jafnrétti milli flokkanna. En þótt flokkarnir væru mjög misstórir og Alþýðubandalagið hefði algera yfirburði eftir kosningúrslitinn hvíldi samstarfið   á algeru jafnrétti. Flokkarnir skiptu völdum og áhrifum alveg jafnt. Hver flokkur hafði einn fulltrúa í borgarráði og formennska þar " roteraði". Sama er að segja um nefndir. Þeim var skipt jafnt á milli flokkanna. Samstarfið gekk mjög vel. Aldrei var neinn ágreiningur við afgreiðslu fjárhagsáætlana.Or raunar kom enginn alvarlegur ágreiningur upp á milli flokkanna enda þótt Sjálfstæðisflokkurinn og Morgunblaðið héldu  öðru fram. Eina alvarlega ágreiningsmálið var sameining Laxárvirkjunar og Landsvirkjunar en það var ekki eiginlegt borgarmál.
 
Til valda á ný á fölskum forsendum
 
Sjálfstæðisflokkurinn náði meirihluta í borginni á ný 1982 einkum á einu máli, svonefndu sprungumáli. En í kosningabaráttunni rak Davíð Oddsson harðan áróður gegn því að byggt yrði á "sprungusvæði" við  Rauðavatn en meirihlutinn vildi byggja þar. Sagði Davíð, að ekki væri unnt að byggja þarna út af sprungum!  Það kom því vel á vonda,þegar Morgunblaðið fékk lóð á þessu svæði og byggði stórhýsi undir aðalstöðvar sínar á þessu svæði. Ekki hefur Morgunblaðið eða Sjálfstæðisflokkurinn kvartað yfir sprungum þarna siðan enda  var  þetta einungis kosningaáróður, sem átti ekki við nein rök að styðjast. Það má því segja,að Sjálfstæðisflokkurinn hafi komist til valda á ný í Reykjavík 1982 á fölskum forsendum.
 
 
R-listinn fellir íhaldið
 
Sjálfstæðisflokkurinn missti meirihlutann á ný 1994,þegar Reykjavíkurlistinn undir forustu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur felldi Sjálfstæðisflokkinn og náði meirihluta í borgarstjórn.Var það á ný mikið áfall fyrir Sjálfstæðisflokkinn, þar eð flokkurin  hélt að eftir valdatíma Davíðs væri borgin óvinnandi vígi Sjálfstæðisflokksins. Hafa margir í Sjálfstæðisflokknum aldrei fyrirgefið Ingibjörgu  Sólrúnu,að hún skyldi fella Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík. Má enn greina ergelsi út af þessu í Morgunblaðinu. R-listinn vann kosningarnar í Reykjavík á ný 1998 og 2002. Í rauninni tapaði R-listinn engum kosningum, þar eð það voru Vinstri græn sem ákváðu að hætta í R-listanum  og sá listi bauð því ekki fram í borgarstjórnarkosningunum 2006.    Ég   er   ekki   í vafa um að R-listinn hefði unnið síðustu borgarstjórnarkosningar,ef hann hefði boðið fram.
 
Tóku sína eigin gröf
 
Hvað felldi Sjálfstæðisflokkinn   nú? Það var sundrung í eingin röðum. Upp kom alvarlegur ágreiningur   meðal borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um Orkuveitu Reykjavíkur og útrásarfyrirtæki þess ,REI. Enda þótt  Guðlaiugur Þór fyrrum borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins  og nú ráðherra, hafi flutt tillöguna í stjórn Orkuveitunnar um stofnun Reykjavik Energy Invest  ( REI)   og enginn ágreiningur verið um það mál þá í röðum sjálfstæðismanna snérust nokkrir  borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins    gegn málinu og ætluðu að nota það  gegn borgarstjóra. Hér virðist hafa verið  um hreina valdabaráttu innan Sjálfstæðisflokksins að ræða.  Nú segja sjálfstæðismenn, að þeir séu á móti því að orkufyrirtæki sveitarfélaga og hins opinbera séu   í samkeppnisrekstri. En þeir áttu sjálfir tillöguna  um stofnun slíks fyrirtækis hjá Orkuveitu Reykjavíkur og þeir hafa sjálfir stutt stofnun slíks fyrirtækis á vegum Landsvirkjunar. Þannig að það er alger fyrirsláttur hjá sjálfstæðismönnum,að þeir vilji ekki að orkufyrirtæki séu  
i samkeppnisrekstri.En nýju mennirnir í Sjálfstæðisflokknum  tefldu of  djarft og þeir telfdu af sér enda óvanir í stjórnmálum.Þeir ætluðu að koma Vilhjálmi,borgarstjóra frá.Þeim lá svo á að komast til valda . Þeir gátu ekki beðið til næstu kosninga. En þeir skutu sjálfa sig í fótinn. Þeir tóku sína eigin gröf´.
 
Mér líst mjög vel á hinn nýja borgarstjóra, Dag B. Eggertsson,leiðtoga  Samfylkingarinnar. Hann er einlægur jafnaðarmaður sem vill bæta aðstöðu fjölskyldufólks og aldraðra
i Reykjavík. Samfylkigin er kjölfestan í nýjum meirihluta félagshyggjufólks í borgarstjórn Reykjavíkur.
 
Björgvin Guðmundsson


N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn