Yfirlit:
Upphafssíða
Pistlar
Æviágrip

Bókaútgáfa

Efst á baugi - æviminningar Björgvins Guðmundssonar


Bætum lífi við árin - greinasafn



Ekki erlent fjármagn í útgerðina á Íslandi

þriðjudagur, 14. september 2004

 

 

 Til umræðu er nú á ný  hvort hleypa eigi útlendingum inn í útgerðina á Íslandi.Þetta hefur lengi veriðdeilumál á Íslandi. Evrópusambandið hefur sótt það fast að fá að fjárfesta í íslenskum útgerðarfyrirtækjum. En Íslendingar hafa til þessa staðið fast á móti því. Það vakti athygli,að utanríkisráðherra tók jákvætt í þetta í ræðu sinni á sjávarútvegsráðstefnu á Akureyri fyrir stuttu. Taldi hann,að í framtíðinni mundi þetta verða leyft.Forstjóri kauphallarinnnar tók einnig jákvætt í þetta svo og forstjóri Samherja.Davíð Oddsson,fráfarandi forsætisráðherra, hefur hins vegar lagst gegn þessu.

  Ef útlendingum verður leyft að fjárfesta í íslenskum útgerðarfyrirtækjum komast þeir bakdyramegin inn í okkar fiskveiðilögsögu. Það yrði mjög slæmt. Það hefur kostað okkur of mikla baráttu að færa fiskveiðilögsöguna út til þess að við látum útlendinga njóta ávaxtanna af því.

 Í dag er það svo að  óbein erlend aðild í íslenskum útgerðarfyrirtækjum upp að vissu marki er leyfð. En ekki bein erlend aðild.Erlend fjárfesting í fiskvinnslu,þ.e. úrvinnslu úr frumframleiðslu er leyfðen ekki í fiskiskipum,frystingu,söltun eða skreiðarvinnslu. Útlendingar hafa ekki haft mikinn áhuga á því að fjárfesta í úrvinnslu fisks. Þeir hafa aðeins áhuga á því að  eignast hlut í okkar fiskiskipum og útgerðarfélögum svo þeir komist inn í okkar fiskveiðilögsögu.

 Menn færa þau rök fyrir því að hleypa eigi útlendingum inn í okkar útgerðarfyrirtæki,að Íslendingar fái að fjárfesta í erlendum útgerðarfyrirtækjum.Á sama hátt mætti segja,að Íslendingar ættu að leyfa útlendingum að veiða í fiskveiðilögsögu okkar,þar eð við fáum að veiða í fiskveiðilögsögu annarra ríkja. En það gengur ekki. Við getum hvorki hleypt útlendingum  með fjármagn inn í okkar útgerð né veitt þeim veiðiheimildir í okkar fiskveiðilögsögu.

 Íslendingar hafa ítrekað reynt að fá fulla  fríverslun í ESB fyrir þær fáu fiskafurðir,sem fríverslun( tollfrelsi) tekur enn ekki til. En ESB hefur sagt nei. ESB hefur þó talið koma til greina að semja um þessi tollfríðindi,ef Ísland samþykkti að leyfa fyrirtækjum innan ESB að fjárfesta í íslenskri útgerð. Áður hafði ESB reynt að fá veiðiheimildir við Ísland á móti tollfríðindum. Ísland hefur staðist hvort tveggja með þeirri litlu undantekningu,að við gerð EES samningsins fékk ESB örlitla heimild til þess að veiða langhala og karfa í íslenskri fiskveiðilögsögu.En ESB hefur gengið illa að ná því magni.

 Það veldur vonbrigðum,að utanríkisráðherra skuli nú taka jákvætt í það,að  leyfa útlendingum að fjárfesta  í íslenskri útgerð. Eina bótin er sú,að fráfarandi forsætisráðherra er algerlega á móti því.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 

 

 



N�justu pistlarnir:
Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018
Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018
Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017
Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017
Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017
Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017
Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017
Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017
Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016
Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016
Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016
Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016
Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016
Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016
Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016
Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016
Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016
Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016
Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016
Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016
Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016
Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016
Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016
76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016
Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016
Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016



Vefstjórn