|      Mikill flótti hefur brostið  á  í liði Framsóknarflokksins.Hver ráðherrann  á fætur öðrum hefur tekið pokann sinn og lagt á flótta.  Finnur Ingólfsson  sagði af sér embætti viðskipta-og iðnaðarráðherra og varaformanns Framsóknarflokksins og hætti í stjórnmálum. . Ingibjörg  Pálmadóttir sagði af sér embætti heilbrigðis-og tryggingaráðherra og hætti í stjórnmálum.. Árni Magnússon sagði af sér embætti félagsmálaráðherra og hætti í stjórnmálum. Halldór Ásgrímsson sagði af sér embætti forsætisráðherra og tilkynnti að hann mundi  segja af sér sem formaður Framsóknarflokksins og hætta í stjórnmálum.  Jón Kristjánsson sagði af sér embætti félagsmálaráðherra. Valgerður Sverrisdóttir sagði af sér embætti  viðskipta-og iðnaðarráðherra og tók við embætti utanríkisráðherra. Þetta er óvenju mikill flótti á stuttum tíma.     |