
Jón Baldvin Hannibalsson,fyrrverandi formaður Alþýðuflokkssins, gagnrýndi Samfylkinguna í Silfri Egils sl. Sunnudag. Gaf hann í skyn að stofna yrði til nýs framboðs, ef Samfylkingin gæti ekki lokið ætlunarverki sínu. Nefndi hann nöfn nokkurra manna, sem hann taldi gott að fá í framboðs svo sem Ómar Ragnarsson, Stefán Ólafsson, Guðmund Ólafsson og Andra Snæ Magnússon.Ástæðan fyrir ummmælum Jóns Baldvins er slakt gengi Samfylkingar í skoðanakönnunum.Ummæli Jóns Baldvins vöktu mikla athygli. Þykir það með ólíkindum, að fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins íhugi að stökkva frá borði vegna ágjafar, sem Samfylkingin hefur orðið fyrir. Alþýðuflokkurinn varð ítrekað fyrir miklum ágjöfum án þess að formennirnir stykkju fyrir borð |